Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1959, Page 2

Heimilisblaðið - 01.05.1959, Page 2
 SKUGGSJfl Enginn getur talið dýrin. — Enginn hefur hingað til getað talið dýrin — og vafalaust mun það aldrei takast. En menn hafa reynt að áætla fjölda tegund- anna — og hann er meiri en flesta rennir grun í. Um 96% af öll- um jarðarinnar dýrum eru minni en manns- hönd, já — gætu meira að segja staðið á fingurnögl, því að sjöundi hluti dýraríkisins er ósýnilegur með berum augum. Teg- undirnar eru taldar um 920.000, þær minnstu eru þúsundasti hluti millimeters, en þær stærstu um og yfir 30 metra langar, eins og t. d. bláhvalurinn. Þar að auki er vitað um 100,000 útdauðar dýrategundir. Það er alveg þýðingarlaust að reyna að áætla dýra- fjöldann. Hann mundi sennilega sprengja talnakerfið okkar. Fjöldi dýra í hverju landi fer eftir því, hve góð lífsskilyrði eru fyrir dýrin í hverju landi. Þýzkir dýrafræðingar telja að í Þýzkalandi séu 37.500 dýra- tegundir. Bergið. — Þið hafið ef til vill ekki gert ykkur grein fyrir því hve vísindin byggja mikið á grjóti, á steinum og bergi. — Margar aldir eru liðn- ar síðan vísindamenn fóru fyrst að rann- saka bergmyndanir, því að það er langt síðan menn fóru að reyna að gera sér í hugarlund þróun og aldur jarðarinnar. Til skamms tíma var allt jarðarinnar grjót yfirleitt flokkað í þrjá meginflokka: í fyrsta lagi berg, sem borizt hef- ur glóandi úr innri jarðlögum upp á yfirborðið við eldgos eða þrengt sér milli efri jarðlaga og myndað svonefnt granit. Þá flögusteinninn, sem myndazt hefur í djúpum jarðlögum þar sem mikill þrýsting- ur efri laga hefur breytt upprunalegri myndun bergsins. Þriðja tegundin er sú, sem myndast við veðrun. Berg molnar vegna áhrifa vinda, sjógangs og hitabreytinga — og myndar að lokum fínan mulning, eða sand, sem stundum fellur til botns í sjó eða stöðuvötnum og myndar sandsteinalög, kalk- lög og fleira því um líkt. Og nú eru menn farnir að tala um fjórða flokkinn. Þar er um að ræða leir-, sand-, kalklög og grjótmulning, sem leggst á sjávar- botn og sígur dýpra og dýpra undan þunga nýrra laga, sem safnast ofan á. Að lokum getur svo farið, að þessi lög nái til eldsins í iðrum jarðar, bráðm og velli glóandi upp á yfirborðið eða setjist milb efri jarðlaga sem granit. Kuðungarnir og hljóðið. — Hafið þið nokkru sinni borið stóran kuðung eyranu ? Ef svo er ekki — þá vitið þ'® það e. t. v. ekki, úr honum heyrast miklar drunur, brak og brestir. Þessi hljóð heyrast jafnvel ur kuðungum í mörg ®r eftir að þeir erU bornir á þurrt land — og áður fyrr sköpuðust miklar sögur og hindurvitni í sambandi við þetta fyrirbærI' — Sumir þóttust þess fullvissir, að sjávarniðuriW1 „lifði“ í kuðungum, stundum var þetta kallað „and- ardráttur sjávarins". Og með fólki, sem lifði við sjávarsíðuna og átti afkomu sína undir sjósóko, hafði þetta kuðungshljóð mikla þýðingu. Menn þótt- ust heyra forboða stórviðra — og veðurspár langt fram í timann í kuðungnum. En sannleikurinn er samt sá, að kuðungurinn SeT' ir ekkert annað en bergmála og magna hljóðin u®' hverfis okkur — og þannig getum við heyrt í kuð' ungnum hljóð, sem eyra okkar nemur annars ekki- Vegna lögunar sinnar magnar kuðungurinn öll hljóð- Þar gilda sömu lögmál og um hornið, sem heyrnar- daufir notuðu áður en nútíma heyrnartkæki konru til sögunnar. Þegar þið berið kuðung að eyranu °& heyrið brak og bresti, eða dynki — þá getur þa® verið andardráttur ykkar, eða hjartaslög, sem þi^ heyrið. FRUMBYGGJAR ÁSTRALÍU ERU ÞEIR VIÐNÁMS- FÆRUSTU GAGNVART KULDA. Ekki skrælingí' arnir (Eskimóar), heldur frunibyggjar Ástralíu Þ°ia kulda hezt allra núlifandi manna. Jafnvel á nóttun'> þegar hitastigið lækkar undir frostmark, sofa Þelf naktir á herri jörð, en þá lækkar líkamshitastig þeirr®> eins og hinn kanadíski líffræðingur J. S. Hart sagð1 nýlega. Hjá frumbyggjum Ástralíu hefur komiS í h'rS[(t skipti í Ijós, aS líkamshitastig manna lœkjtar vl kulda, án ftess aS gera mönnum neitt mein. fyrirbrigSi minnir á vetrarsvefn sumra dýra. H]a öllum öSrum manntegundum tekst aSeins tne vissum lyfjum og meS miklum varúSarráSstöfn’1 um aS lcekka líkamshilastigiS. Hefur þessi a (( ferS mikla þýSingu sem „tilbúinn vctrarsvef11 í nútíma uppskurSartœkni. Heimilisblaðið kemur út annan hvern uð, tvö tölublöö samoJtf blaSsíSur. Verð árgangsins er kr. 50.00. í lausasÖ lj kostar hvert blaS kr. 10.00. Gjalddagi er 14. apTll‘ Utanáskrift: HeimilisblaÖiS, BergstaSastrœti 27, Pöst hólf 304, Reykjavík. — PrentsmiÖja Jóns HelgasoaaT HEIMILISBLAÐ10 90

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.