Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1959, Qupperneq 5

Heimilisblaðið - 01.05.1959, Qupperneq 5
aglendi gott fyrir hestana og sæluhúsið til- valinn dvalarstaður fyrir mig, svo að þar Varð naumast á betra kosið. Hefti ég nú hestana, tók af þeim reiðtygin °S skildi svo við þá þar sem haglendið var einna bezt. Að því búnu tók ég að svipast 11111 eftir hvíluplássi í sæluhúsinu. Sá ég þá n°kkrir menn voru þar fyrir. Voru þeir a lr í fastasvefni og fór ég því sem hljóðleg- asl) til þess að raska eigi svefnró þeirra. ratt fann ég autt rúm, sem hentaði mér ^el) lagðist í það og sofnaði innan skamms tima. Eg mun hafa blundað fullar tvær klukku- s Undir, er ég vaknaði við mannamál. Voru a sæluhúsbúar vaknaðir og teknir að ræða Saman. Gaf ég mig brátt á tal við þá og ®Purði um ástæðuna fyrir veru þeirra þarna. ^n þeir kváðust eiga að annast fjárvörzlu Pessar slóðir sumarlangt, vegna sauðfjár- o^U ^ómanna illræmdu. Þeir voru alls fjórir var Jóhannes skáld úr Kötlum einn Þeirra. ■Mér varð nú hugsað til hestanna og fór ’ ^ a^ gæta að þeim. Veður var enn kalt °^tjr^0lna n°kltur) sem var slydda. að .estana fsnn ég fljótlega, því að þeir voru ems spölkorn frá sæluhúsinu. Var þeim kalt og leið illa. Sá ég, að ^-börfnuðust húsaskjóls framar öllu öðru. étt við sæluhús Ferðafélagsins er gamall leitar: hu: rrrannakofi úr torfi. Kom mér nú til tm að láta hestana þar inn og hafa þá þar, unz þeim hlýnaði. En þar voru smá- vegis annmarkar á, því að í kofanum var allmikill farangur, sem sæluhúsbúar áttu. Fór ég því til fundar við þá og mæltist til þess, að þeir rýmdu kofann. Tóku þeir því vonum framar vel, og eftir nokkrar bolla- leggingar var þessu komið í framkvæmd. Lét ég síðan hestana þar inn og gat nú verið rólegur þeirra vegna. Alltaf var sama þokufargið yfir tindum Kerlingarfjalla og sýnilegt, að því myndi eigi létta í bráð. Það virtist streyma kaldur loft- straumur ofan af Hofsjökli, suður yfir fjöll- in, og gerði ég mér í hugarlund, að hann myndi vera valdur að þokunni. Ég hafði upphaflega ætlað að ganga á einhvern af hátindum Kerlingarfjalla og njóta hins frábæra útsýnis þaðan. Nú var sú hugmynd að engu orðin. Hins vegar taldi ég líklegt, að unnt væri að komast í Hveradal- ina, sem var einn aðaltilgangur fararinnar. Ég vissi, að úr Árskarði átti að vera stutt leið í Neðri-Hveradalina svonefndu og ákvað að reyna að finna þá. Ég færði þetta í tal við Jóhannes, því að mér virtist hann vel kunnugur staðháttum þarna. Taldi hann öruggt, að ég myndi finna dalina, þrátt fyrir þokuna, og sagði mér greinilega, hvar fara ætti. Var ég svo eigi með frekari heilabrot þar um, en lagði þegar af stað. Hélt ég nú meðfram Árskarði að austan- verðu, inn á milli fjallanna. Dökknaði þokan ISBLAÐIÐ HEimiL 93

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.