Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1959, Side 6

Heimilisblaðið - 01.05.1959, Side 6
brátt, eftir því sem hærra kom, og sá ég að lokum aðeins örskammt frá mér. Argljúfrið hafði ég jafnan til hliðsjónar og var það mér ómetanlegur leiðarvísir. Það er víðast stór- brotið mjög og hrikalegt yfirlitum, eða þann- ig kom það mér fyrir sjónir, og má vera, að þokan hafi átt sinn þátt í því. Barmar gljúf- ursins eru næsta óreglulegir og hafa sýnilega sorfizt sundur af völdum vatns og vinda um aldaraðir. í heild sinni er gljúfrið skugga- legt og niður árinnar hljómar annarlega í djúpum þess. Að nokkrum tíma liðnum sá ég móta fyrir djúpri lægð og vissi samstundis, að þar myndu Neðri-Hveradalir vera. Gekk ég svo fram á dalbrúnina og litaðist um. Og mér gaf á að líta! Fyrir fótum mér lá þröngur dalur, svo furðulegur að litskrúði, að ég hef eigi fyrr né síðar séð jafn litauðugt land. Voru litirnir af öllum gerðum, rauðir, gulir, græn- ir og bláir, og svo óendanlegt sambland allra þessara lita þar á milli. Engin þoka var í dalnum, en ótölulegur fjöldi gufustróka sté upp frá botni hans og hlíðum. Út frá dal þessum gengu svo aðrir minni dalir, eða gil- skorningar, en þá sá ég eigi jafn greinilega. Ég tók nú þegar að athuga möguleika fyrir að komast niður í þessa ævintýralegu dali, því að ég vildi umfram allt kanna þá nánar. Þaðan, sem ég var staddur, var eigi viðlit að komast í dalina og gekk ég því áfram með þeim nokkurn spöl. En þar virtist alls staðar illfært niður, enda lágu fyrningafann- ir fram á dalbrúnir. Sneri ég þá til baka og fann þá, eftir nokkra leit, grunnan skorning, er ég komst niður um með hægu móti. Niðri í dölunum var blæjalogn og yndis- legt að vera. Þokan sveif hið efra meðfram dalabrúnunum, en náði eigi að seilast ofan í dalina sjálfa. Voru viðbrigðin svo mikil, að koma úr kuldalegri þokunni í veðurblíðuna þarna, að mér fundust þetta vera eins konar sæludalir. Fór ég nú að svipast þarna um og voru það hverirnir, sem einkum drógu að sér at- hygli mína. Þeir voru þarna við hvert fót- mál að kalla, ýmist gufu- eða leirhverir. Fjölbreytni þeirra virtist takmarkalaus.Voru sumir forkunnar fagrir og umvafðir dásam- legu litskrúði, þar sem öll blæbrigði lita sam- einuðust. Aðrir höfðu fáránlegar myndir, jafnvel ægilegar, svo að mér stóð nálega ógn af. Eg reikaði víða um dalina, hugfanginn og undrandi. Alls staðar voru hverir, stórir og smáir, alls staðar kraumandi leireðja og þjótandi gufumekkir. Sums staðar varð ég að fara gætilega, því að gapandi hveraopi11 gátu leynzt í mekkinum, sem huldi á stöku stað allmikil svæði. En allt fór þó vel og ég slapp farsællega út úr öllum slíkum háska- Mér dvaldist lengi þarna í dölunum, þvl að margt var að skoða, eins og gefur að skilja. Að lokum hélt ég samt brott þaðaHi og þó heldur treglega. Raunverulega fannst mér, að dvöl mín þar væri allt of skamm' vinn. Ég þóttist sjá, að tilgangslaust væri að fara víðar um fjöllin, og hélt því til bakai sömu leið og ég kom. Þokan var enn hia sama, myrk og hráslagaleg, þegar upp ur dölunum kom, og taldi ég því öruggast að hafa enn — í bakleiðinni — hliðsjón af gljúfri Árskarðsár, sem ég og gerði. Gekk mér ferðin vel og var ég von bráðar komin11 að sæluhúsinu aftur. Eftir gönguför mína í Hveradali, tók eg að búast til brottferðar úr Kerlingarfjöllum- Hafði ég í hyggju að gista í sæluhúsinu 1 Hvítárnesi nótt þá, sem framundan var, °& stytta þannig heimleiðina fyrir næsta dag- Hestarnir höfðu nú jafnað sig vel eftir kuld' ann um morguninn. Hafði þeim hlýnað fljot' lega, eftir að þeir komust í húsaskjólið, °£ voru nú auk þess mettir orðnir af grængreS' inu í Árskarði. Klukkan mun hafa verið um sex, er lagði af stað úr Kerlingarfjöllum. Fór ég Ul1 að sjálfsögðu bílveginn til baka og sóttisf mér ferðin greiðlega niður í Hvítárnes. I sæluhúsinu í Hvítárnesi var einn maóur staddur, er ég kom þangað, Húnbogi Haf' liðason að nafni. Stóð vera hans þar í elir hverju sambandi við fjárvörzluna, sem áður getur um. Þótti mér vænt um að fá þarIia óvæntan félaga til að rabba við. Fagurt var í Hvítárnesi þetta kvöld. Þ°ku var þar engin, en veður bjart og kyrrláÚ' Allt var hjúpað mildri aftankyrrð. Hvítar. vatn sjálft var sem spegill og endurspegl3 stöðugt síbreytileg blæbrigði himindjúpsiriS' Bak við það í vestri risu tíguleg fjöll, ásam 94 heimilisblaði0

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.