Heimilisblaðið - 01.05.1959, Side 22
110
<— Þetta er stærsta
klukka, sem hefur verið
smíðuð, stærð skífunnar
er 20 metrar í þvermál,
langi vísir er 10 metra
langur og fer 1 meter á
mínútu. — Hálfa milljón
króna kostaði að smíða
hana.
Þegar vetrar í Norður-
Bandaríkjunum, þyrpist
fólk suður á Flórídaskaga,
í sól og sumar. Myndin
var tekin við Flórídaskag-
ann í vetur. —>
<— Stúlkan fékk þessa
nýstárlegu skreytingu að
gjöf á siðastliðnum pásk-
um.
Maharajainn í Sikkim
iðkar málaralist í frí-
stundum. Hér er hann að
mála mynd af dóttur
sinni, fyrir utan höllina í
Gantok. (Sikkim er smá-
ríki við landamæri Ind-
lands og Tíbet, höfuð-
borgin heitir Gantok). —>
8. maí voru 100 ár liðin
frá því að Svisslendingur-
inn Henry Dunant byrjaði
líknarstarfsemi sína á víg-
völlunum, sem leiddi af
sér stofnun alþjóða Rauða
krossinn. — Hugmyndina
fékk hann, þegar hann
var á vígvöllum ítalska
stríðsins 1859. Myndin er
af málverki, sem sýnir
Dunan við líknarstarf á
vígvellinum við Solferino
á Ítalíu. —>
<— Þessar ungu stúlkur
eru á málaraskóla í Lund-
únum, þær bregða sér út
í lystigarðinn Hyde Park
til að ná fyrirmyndum.