Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1959, Page 30

Heimilisblaðið - 01.05.1959, Page 30
hjá ferðafólkinu, átti hann ekki annars úr- kosta en að láta sem ekkert væri. Við settum upp segl og sigldum rúman hálftíma meðfram árbakkanum. Allt í einu æpti Achmed Schimbu og benti á sandrif. „Þarna . . . sjáið þér, herra! Stór krókó- díll!“ Við bárum sjónaukana upp að augunum. Þetta var vissulega stór skepna, sem lá þarna í sandinum, hreyfði við og við hinn risastóra hala, opnaði oft ginið, geispaði og lá svo aftur grafkyrr. „Siglið nær!“ hvíslaði einn ferðamaður- inn að Achmed og stóð tilbúinn með byss- una sína. „Helzt ekki nær, herra!“ sagði Achmed Schimbu. „Þarna er hættulegt dýpi!“ Þá hóf ferðamaðurinn byssu sína og hleypti af. Við heyrðum hvæs og blásturs- hljóð, þá skreið krókódíllinn í vatnið og hvarf. Achmed Schimbu vildi stýra bátnum burt frá staðnum, um leið og hann sagði: „Nú þýðir ekki að reyna meira í dag.“ Þá tók ég stýrið af honum og stefndi r sandrifið, þrátt fyrir örvæntingarfull mót- mæli hins ágæta Achmed. Ég hafði auðvitað fyrir löngu gert mér Ijóst, að það var eitt- hvað gruggugt við þetta allt saman og að þessi krókódíll var enginn annar en sá, sem ég hafði stoppað. Þar eð ég vildi undir eng- um kringumstæðum að vinna mín yrði not- uð í sviksamlegum tilgangi, lét ég hin ör- væntingarfullu hróp Achmeds eins og vind um eyrun þjóta. Báturinn sigldi upp á sand- inn og ég hljóp upp á sandrifið, sem lá milli runnanna. í sama andartaki hljóp Araba- strákur hljóðandi upp úr gryfju og lagði á flótta eins og fætur toguðu. Ég fann streng í einum runnanum, sem var festur við staur. Með sameinuðu átaki drógum við farþeg- arnir krókódílinn upp úr vatninu. Tveir aðrir spottar voru festir við hann og með þeim var hægt að hreyfa gin hans og hala. Það sáust meir en tvær tylftir af skotförum á skrokki krókódílsins. — Achmed Schimbu hlaut þegar að vera búinn að græða tífalt þá upphæð, sem það hafði kostað að gera krókódílinn nothæfan sem tálbeitu fyrir trú- gjarna ferðamenn. „Herra, krókódíllinn er mín eign,“ sagði Achmed í bænarrómi við mig. Síðan sýndi hann mér lyftistengurnar og annan útbúnað, sem hann hafði komið fyi'i1' í gini krókódílsins. Achmed Schimbu flutti okkur hryggur 1 bragði aftur til Khartum. En sorgmæddai-1 var hann þó er hann endurgreiddi skotgjöld' in! Næsta morgun var barið á dyr á vinnii' stofu minni. Achmed Schimbu birtist og sagði mér langa sögu. Vatnið hafði hækkað í Níl og flóðið hafði rifið krókódílinn burt’ með sér. Ég trúði auðvitað ekki orði af þvi> sem hann sagði, en hótaði honum að láta lögregluna taka hann. En frásagnirnar, sem birtust í blöðunum næstu vikurnar færðu mér þó heim sanninn um dálítið annað. — Ferðafólk á skipi einu, sem sigldi eftir Níl> hafði gert ítrekaðar tilraunir til að veiða krókódíl, sem rak með straumnum. Króko' díll hafði fælt baðgesti burt í Luxor. Loks hafði hann sézt í miðri Kaíró-borg, við stóm Nílar-brúna. Ferðafólk, innfæddir, lögreglu" menn og hermenn höfðu skotið á skepnuna> sem augsýnilega virtist vera ódrepandi og ber að þakka það, hversu vandlega óg hafði stoppað hann á sínum tíma, að króko' díllinn hans Achmeds gat ekki sokkið! Ofsahræðsla greip um sig meðal Daha' bijen-leiðsögumannanna og bátaeigenda. — Enginn ferðamaður þorði lengur að fara ut á fljótið á þessum litlu bátum. GufuskiP var gert ferðbúið, tvær tylftir ríkra Englend' inga tóku sér far með því og reyndu þeir nu HEIMILISBLAÐl® 118

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.