Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1973, Qupperneq 6

Heimilisblaðið - 01.05.1973, Qupperneq 6
Heimur þess verður ósegjanlega stærri en ella og spenningurinn meiri; framundan sér það langa braut víðtækari þekkingar, sem aldrei verður gengin til enda svo lengi sem það lifir. En einnig verður að vera tími og rúm til leikja. Leikur er frjór, líka í einveru, ekki síður en þegar fjölskyldan tekur þátt í lion- um. Nauðsyn'legt er að geta leikið sér úti í náttúrunni. Þau böm eru bamingjusöm, sem búa á kyrrlátum stöðum, umvafin fegurð. Hvarvetna þar sem börn eru, eftirlíkja þau það líf sem lifað er umhverfis þau. 1 leik öðl- ast barnið fullnægingu fyrir alla veru sína, líkaminn þjálfast, andinn liressist, hugmynda- auðgin eflist. - Fyrir fullorðna eru þær stundir ríkastar að ánægju, sem varið er til áliugaverðrar, eftir- væntingarfullrar og liagnýtrar vinnu. Það sem veitir fullorðnum slíkt, fær barnið í leikjum sínum þau þroska eigin hæfileika til að njóta lífsins, afla hlutanna og auðgast af þeim í anda. Það er í leikjunum, sem börnin uppgötva fyrst gildi blutanna. AuSlegtSin stœrsta. Börnin em stærsta gleði okkar og dýrmæt- asta auðlegð. Á þessu kröfuharðasta skeiði i sögu mannkynsins þörfnumst við þeirra allra. Hver veit, hvílíkur vísindasnillingur, lista- maður, reikar um í örbirgð og vonleysi fa- tækrabverfa stórborganna? Sú ást, sem við látum í té, sú vitræna, skilningsríka og velvilj- aða ást, er bezta tillagið, sem við getum veitt. Því að börn okkar eru það, sem við gerum ur þeim. Þau koma til okkar hjálparvana og a- hrifagjörn, algjörlega háð því, hvernig við búum að þeim .Þau fara frá okkur sem karl- ar og konur, næsta kynslóðin, blessunarrík eða fordæmd. En þau börn, sem alin eru í öryggi, því öryggi sem veitist á góðu heim- ili og í ástríki, þau eru hrós okkar og hani- ingja, sjálf framtíðin og auðlegðin stærsta. 78 H E I M I L I S B L A Ð I f>

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.