Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 24

Heimilisblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 24
KONAN í DRAUMI HANS Eftir Alice Dwyer-Joce. Ég reikaði í hægðum mínum niður eftir Reg- ent Street og sveigði út á Piccadilly, og var að velta því fyrir mér hve kostulegt það væri að hafa Ckkert fyrir stafni. Ég var í bókstaflegri merkingu atvinnulaus. Óneitanlega átti ég enn- þá mína ágætu handsaumuðu skó og ýmsa aðra verðmæta hluti, enda þótt „Matvöruverzlun Richards Penletons“ væri ekki lengur í eigu fjölskyldunnar, og þótt hann afi minn, Ric- hard Penleton fyrsti, hlyti að snúa sér í gröf sinni við þá tilhugsun eina saman. Hann hafði stofnsett fyrirtækið á jafn yfirlætislausan hátt sem að setja upp matjurtargarð á baklóð, rækta þar ávexti og grænmeti og umbreyta þeim í sultur, mauk, súpur og kjöt með grænmeti í stórum eirkötlum inni í eldhúsi hjá sér. Pabbi var vanur að segja, að hann væri maður for- sjáll, enda voru þau orð letruð undir brons- styttu hans í eðlilegri stærð, sem stendur nú fyrir framan verksmiðjubygginguna. Þegar hann lézt, hafði hann komið upp verksmiðju þar sem störfuðu þúsund manns, og nafn hans var þekkt um víða veröld sem tákn hins fullkomn- asta í niðurlagningariðnaði. Hann sá um, að faðir minn fengi góða menntun, og var hreykinn þegar sonurinn kvæntist dóttur manns, sem var meðlimur Kon- unglegu akademíunnar. Það þýddi, að fjölskyld- an var á uppleið í mannvirðingarstiga þjóðfé- lagsins og að fjámrunir þeir, sem menntun föð- ur míns hafði kostað, höfðu ekki lent í súginn. Móðir mín var heilsuveil, og faðir minn sagði, að hún gerði hvað hún gæti til þess að ég yrði það líka. Hún hafði fengið það í kollinn, að ég væri lingerður aumingi, og þegar ég var orðinn of stór til að láta bamfóstru sjá um mig, vildi hún láta ráða mér einkakennara. En þá setti faðir minn hnefann í borðið og sendi mig í heimavistarskóla, en þaðan var ég sendur í einn af okkar þekktustu háskólum. Þar var reynt allt hvað hægt var til að steypa mig í mót hins hefðbundna. Árangurinn varð rétt í meðallagi. — Ég vona, að þú hafir hér hjá okkur þrosk- að með þér tilfinninguna fyrir því, sem hefur raunverulegt gildi í lífinu, Pendleton, þótt ekki væri annað, mælti rektor, þegar ég var kallað- ur inn á skrifstofu hans áður en ég kvaddi skólajnn. — En prófeinkunnimar þínjar eru ekkert til að vera sérlega hreykinn af. Hann brosti daufu brosi, og ég endurgalt það í sömu mynt. — Má vera, að þér vegni betur í viðskipta- heiminum, sem ég þykist vita að þú komist í kynni við innan skamms. Ég hef oft velt því fyrir mér, hvort maðurinn sé hamingjusamari við það að berja þekkingu inn í kollinn á ungl- ingum fyrir 500 punda árslaun, eða við að senda gulrætur á heimsmarkaðinn gegn 5000 punda upphæð í aðra hönd. Ég leit þungbrýnn á þessa gömlu höfðingja- sleikju. — Ég myndi glaður vilja skipta á aðstöðu við vður, herra, sagði ég. Ég myndi feginn vilja láta þann Jagúar-bíl, sem ég á í vændum, í skiptum fyrir skikkjuna yðar og skólameistara- húfuna. Hann reis á fætur og sló saman hönd- um undir skikkjunni. — Égkann-ekki við framhleypni, Pendleton, sagði hann — og það að ástæðulausu, því ég hafði bara talað sannleikann. Þegar frá því ég var átján ára hafði ég haft yndi af því að sitja tímunum saman við það að setja saman háfleyg orð á pappír, ellegar mála skærum litum á léreft. Það kom fram gráum hárum á höfði föður míns, sem sagði að 112 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.