Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 29

Heimilisblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 29
^kagljái, og um munnin voru angurværir drættir. ert tilfinninganæmur um munninn, hafði Jane sagt, og ég þreifaði um varir mér með fingrunum. Ég brosti við spegilmynd minni, en eg fann enga sanna gleði í þeim andlitssvip sem ég sá. Ég burstaði tennurnar við vaskinn, sömu- leiðis hár mitt, og andartak sá ég fyrir mér nnna eigin mynd í blárri baðkápu þar sem ég sat á hné barnfóstru minnar. „Guð blessi mömmu og pabba og Nanny og geri mig að goðum dreng. Amen“. Ég lagðist fyrir í breiðu rirmi mínu og varð hugsað til bamaherbergis- lns heima, hversu allt var nú burtu og liðin tíð; og allt þetta fólk dáið. Ég gleymdi að taka inn róandi töflurnar, en ég var eigi að síður fljótur að sofna. En kannski var það sök- nm þessarar glevmsku, að mig drevmdi draum- lnn enn einu sinni. ^ér fannst ég standa í brúnni á Sapper. Við snigluðumst gegnum þokuna, sem var þétt og rök og vafði allt sinni þvkku voð. Það var kom- ln nott, og við vissum af tveim kafbátum í nand. Enda þótt um hávetur væri og nístings- ’ai1, stóðu svitadropar á enni mér, og hjartað karðist í brjósti mér. ®g greip heljartaki í handriðið um leið og vtð sigldum á olíuskipið miðskips og sátum ^stir tólf fet inni í skipsskrokknum. Olíuskip- 1 stóð þegar í björtu báli, og eldtungumar teygðu sig fjögur hundruð fet upp í þétta þok- nna. Allt í einu, rétt eins og aðeins getur gerzt 1 úraumi, þá höfðum við rekizt á stóran gráan ettadrang. Ég stökk fyrir borð og kom þá auga á stúlkuna. Hún var fjötruð við klettinn, me® ^endur bundnar yfir höfði sér, Hún stóð ?rafkyn- e;ns Qg en stór tár hrundu n' Ur ^innar henni, og ég þóttist vita, að þetta Væn ^ndrómeda. Hár hennar bærðist fyrir hæg- 'ni 'dndi, þegar hún reisti höfuðið og leit á ^11?- Einmitt á þeirri stundu kallaði Simon til nun, og ég var aftur um borð í Sapper. ~~ Það geta ekki liðið nema fimm mínútur gað til eldurinn kemst í tankana, og þá Pnngum við allir í loft upp. HE IM ILISBLAÐIÐ Mér var einn kostur að bjarga mannskapnum áður en slíkt gerðist. Þeir klöngruðust upp kað- alstigana sem við höfðum varpað fram vfir borð- stokkinn til þeirra. Andlit þeirra voru svört af olíu og sóti, og það skein í hvítar tennumar. — Haldið ykkur, haldið ykkur! Orðin bergmáluðu í grárri nóttinni, þegar ég hrópaði þau í gjallarhornið, sem ég hélt á í hendinni. — Komið og sjáið nöktu stúlkuna, sem er bundin við klettinn, áður en sjóormurinn svelg- ir hana! Borgið þegar þið eruð komnir um borð! Ég var neyddur til að finna hana. Ég hljóp eftir endilöngum ganginum, sem ég þekkti mætavel. Hann var endalaus. Hverjar dyrnar eftir aðrar opnuðust. . . . þetta tók engan enda . . . það var eins og eilífðin sjálf. . . Enginn tími til lengur. Svo var H.G. allt í einu kominn á vettvang með filmstjömubros sitt og rólegu rödd. — Ég hélt ekki, að það væri nauðsynlegt að meðhöndla þig með losti, en ef þú ímyndar þér að þú sért Perseus sem ferðist um og bjarg- ir stúlkum úr háska, þá er ekki um annað að gera. Ég set straumgjafa sitt hvoru megin á höfuð þér og hleypi svo á. Þú munt ekki finna fyrir því. Ég heyrði lágt og hvæsandi hljóð og fann hvernig málmurinn gróf sig í hold mitt; ég velti höfðinu til og frá í árangurslausri tilraun til að losna. Mér var ljóst, að aldrei myndi verða nokkur möguleiki á því að finna Andrómedu, °g ég fylltist örvæntingarfullu vonleysi, sem enn var ríkjandi í öllum mínum skilningarvit- um þegar ég loksins vaknaði og komst að raun um, að mig hafði enn einu sinni dreymt sama drauminn. Framhald. n7

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.