Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Blaðsíða 4
finnast náskyldar tegundir af naggrísum, chinchillu (einskonar héramús), vissar tegundir skógasnigla og risavaxnar sand- eðlur, sem verpa eggjum sínum í hvít- mauraþúfur. Allir fiskar og vatnadýr Suð- ur-Ameríku eiga nána ættingja í Afríku; sem dæmi má nefna rafmagnsálinn og lungnafiskinn, sem rekur hausinn upp úr forarvilpunni til að anda. Ef að aldrei hafa verið nein tengsl milli þessara heimsálfa, er mjög erfitt að skýra það, hvers vegna þessar geysisérkennilegu dýrategundir geta verið beggja vegna Atlantshafsins. Hinir einörðu andstæðingar kenningar- innar benda aftur á móti á möguleikan- um á einskonar landbrúm, svipuðum þeim tanga eða eiði, sem eitt sinn tengdi Asíu við Norður-Ameríku þar sem nú er Ber- ingssund. En það er bara ekkert, sem bendir til þess, að nokkru sinni hafi verið um að ræða landbrú af slíku tagi milli Afríku og Suður-Ameríku. Gegnum Norð- ur- og Suður-Atlantshaf liggur hinsvegar neðansjávarfjallgarður, sem fellur á merkilegan hátt saman við strendur heims- álfanna beggja vegna við, hvað stefnu snertir. Ekki er til nein viðhlítandi skýr- ing á tilkomu þessa fjallgarðs, en menn hafa sett hann í samband við allt það stór- fenglega jarðrask, sem orðið hefur, þegar meginlöndin tvö greindust hvort frá öðru. Grasafræðingar hafa einnig sitt af mörkum að leggja varðandi landrekskenn- inguna. Prófessor Ronald Good, sem áð- ur starfaði við British Museum, hefur í hinu sígilda verki sínu, Landafræöi blóm- 'plantnanna, komizt svo að orði: „Meðal plöntu-landfræðinga ríkir næstum það samróma álit, að núverandi landfræðilega skiptingu plöntui'íkisins sé aðeins hægt að skýra með því, að núverandi meginlönd jarðarinnar hafi endur fyrir löngu verið öll eitt og sama meginlandið." Eg hef sjálfur orðið vitni að þessum plöntufræðilegu sönnunum. 1 gilskomingi einum á Grænlandi, 500 ldlómetrum fyrir norðan heimsskautsbaug, kom ég auga á þunn lög flögusteins, sem féllu hvert frá öðru eins og blöð í bók. Á næstum öllum þessum steinflögum voru afþrykk plöntu- leifa — t. d. vængjuð fræ álmtrésins og blöð af mösurviði og öðrum þeim trjám, sem aldrei hafa lifað á köldu heimsskauta- svæðinu, en vaxa hinsveagr í hinum tempr- uðu skógum Norður-Ameríku. I Grænlandi fann ég einnig dæmi um sérkennilega plöntu af Saxifraga- (stein- brjóts-)ætt, sem fyrirfinnst líka hinum megin á hnettinum — hátt í hlíðum Hima- laya. Þessi einstæða planta æxlast ekki gegnum fræ, heldur skríður hún um, ef svo má að orði komast, með því að skjóta frá sér hliðaranga, einskonar litlum lauk. Með tíð og tíma getur hún þannig lagt að baki þúsundii’ kílómetra með sínum tíu sentimetra löngu „skrefum" í senn, en varla getur hún þó hafa tekið undir sig stökk þvert yfir úthöfin! Athuganir sem slíkar geta bent til þess, að Norður-Ameríka og Grænland hafi ein- hverju sinni verið tengd Evrópu og Asíu, en orðið viðskila og þokazt til vesturs, þar sem Grænland hafi „strandað“ um sinn, en Ameríka haldið förinni áfram. Fyrir um 200 milljón árum þokaðist hin reginefldasta af öllum ísöldum frá suðurpólnum norður á bóginn. Ruðnings- steinar, jökulöldur og núningsrákir segja okkur, að jökulísinn hafi þakið Suður- Ameríku alla leið upp að miðbaug og einn- ig hulið Ástralíu vestanverða og Indland. Samt hafa jöklarnir ekki getað þrengt sér gegnum hitabeltishluta Suður-Amer- íku eða komizt yfir miðbauginn til Ind- lands. Við miðjarðarlínuna er stöðugur hiti vegna óaflátanlegs sólskins, og ísinn hefði bráðnað. Hin eina lausn gátunnar er sú, sem Wegener kemur fram með: Suðurheimsskautslandið, Indland og Ástr- alía hafa ekki alltaf verið þar sem þau eru nú. Þau hafa þokazt til á yfirborði hnattarins, og þau hljóta að hafa verið 4 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.