Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Blaðsíða 14
ur í hendina á Alec og' hypjaðu þig burtu.“ Enginn af áheyrendunum hafði minnstu hugmynd um, hvað sheriffinn meinti með dylgjum sínum um gráa hestinn — en það var nægjanlegt til þess að harðlæsa munn- inum á Johnson. Hann olnbogaði sig með McGregor á hælunuin út úr mannþröng- inni og hvarf skömmu síðar inn í hótelið neðar í götunni. Eftir var nú aðeins ungi maðurinn sem miðdepill fyrir athygli allra, en sheriffinn var ekki seinn á sér að beina forvitninni í aðrar áttir. „Hvyss . . . hvyss!“ sagði hann eins og hann væri að banda frá sér kjúklingum. ,,Ég þarf að tala nokkur orð við unga manninn hérna. Þið hinir getið farið héð- an.“ Mannþyrpingin dreifðist, en frá vegg- svölum. hótslsins fylgdust menn með, hvað gerðist í málinu. Sheriffinn hvessti augun á unga mann- inn, sem stóð nú einr. eftir. „Hvað ei-tu gamall, drengur minn?“ „Tuttugu og þriggja ára.“ „Tuttugu og þriggja ára? Sjáum til!“ Sheriffinn hló lágt eins og svarið skemmti honum sérstaklega vel „Og hvað heitir þú þá ?“ „Thomas Converse,“ svaraði ókunni maðurinn. „Thomas Converse! Það var undarlegt nafn. Komdu hingað upp til mín og fáðu þér sæti og hvíldu þig stundarkorn, dreng- ur minn. Hvaðan kemur þú?“ „Ég er langt að kominn,“ sagði hann og hallaði sér aftur á bak í stólnum. Sheriffinn brosti. Allt í einu rétti hann fram skjálfandi hendina. „Lofaðu mér að líta sem snöggvast á byssuna þína, vinur minn.“ Tom Converse kipptist við. „Ég geng aldrei með byssu á mér,“ sagði hann. „Jæja — jæja,“ sagði sheriffinn og hnyklaði brýnnar. „Maður eins og þú þarft ekki á byssu að halda, það er mikið rétt, en þú mundir nú samt sem áður heldur vilja koma á mannamót fatalaus en skammbyssulaus. Láttu mig sjá hana.“ Það var einhver valdsmannssvipur yfir gamla manninum, sem Tom Converse vildi ekki þrjóskast við. Eftir augnablik tók hann fram skammbyssu, sem ekkert hafði borið á fram að þessu. Hvar skammbyss- an hafði verið geymd, var ráðgáta, því að hreyfingin, sem eigandinn notaði til þess að ná í hana með, var snöggari en leiftrið. Það rumdi ánægjulega í sheriff- anum. „Þú hefur mikla ánægju af þessu,“ sagði hann. „Af hverju stafar það? Ertu vanur að gang um og skjóta fólk með þessari þarna ?“ Blóðið hljóp fram í kinnarnar á unga manninum, og hann deplaði augunum. „Ég hef aldrei skotið mann,“ sagði hann. „Og ég vona, að ég neyðist aldrei til að gera það.“ Það var bæði strangleiki og alvara í svip sheriffans. „Ég ætti að taka hana af þér,“ sagði hann. „En ef ég geri það, þá ferðu bara og nærð þér í aðra.“ Á móti skapi sínu fékk hann eigandanum skammbyssuna aftur. „Tom,“ sagði hann og lagði hönd sína á öxl unga mannsins. „Viltu lofa mér að tala við þig eins og gamall, gamall maður — en ekki sem sheriffi ?“ „Ég skal hlusta á,“ sagði Tom Converse og lét skammbyssuna hverfa með furðu- legri leikni. „Þá vil ég bara segja þér þetta,“ sagði sheriffinn. „Það væri hyggilegast fyrir þig að ganga aldrei með skammbyssu á þér. En úr því að þú hefur eina, þá rændu áldrei mann lífinu með henni. Við erum ekki vanir því hérna í borginni. Þú skil- ur — ef ég einn góðan veðurdag skyldi frétta, að maður hefði verið skotinn hérna í héraðinu, þá mundi ég undir eins spyrja eftir þér. Og komdu þér svo burtu,“ sagði hann brosandi. „Ég vildi óska, að í mínu 14 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.