Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 8

Heimilisblaðið - 01.01.1977, Síða 8
út, svo illa vaxin sem hún er, með axlir eins og kampavínsflaska, og’ ljótar og illa hirtar tennur. Hún hlær alltof hátt og of oft, og svo er hún utan í öllum. Hún hef- ur ekki hugmynd um, hvað sæmir í um- gengni við fólk. Ef ég væri Henri, þá myndi ég ekki einu sinni líta í áttina til hennar, og ég myndi gera mér far um að vera alls ekki bendlaður við hana. Hún er í stuttu máli sagt ein lítil gæs. Sunnudagurinn 17. maí. 1 mínum augum er Henri hinn fullkomni ungi maður. Ég er nú orðin nokkurnveg- inn viss um, að hann er ástfanginn af mér og nýtur þess að vera í návist minni. Um daginn vorum við á Vorsýningunni sam- an, og þar ræddum við um ítalska list. Hann hefur mætur á Botticelli og Chir- landajo, en ég held mest upp á Bartolom- meo og del Sarto. Ég held næstum, að mér hafi tekizt að sannfæra hann um, að mitt sjónarmið er réttara, og ég var meira en lítið hreykin, þegar hann lagði handlegginn yfir öxl mína og sagði: „Þér eruð eins falleg og þér eruð menntuð, kæra Coletta." Þetta gæti nú litið út eins og hver önnur kurteisi, en það — hvernig hann sagði þetta, og hvernig augnaráðið var um leið . . . ! Ég beið eftir því, að hann játaði þetta allt á hverri stundu, en hann gerði það ekki, og ég býst við því, að það stafi einungis af því hversu óframfærinn hann er að eðlisfari, þrátt fyrir alla sína heims- frægð. Fimmtudaginn 28. maí. Var í tennis í dag, en það var óvenju leiðinlegt. Henri kom ekki. Hann er í bíla- leiðangri suður á Ttalíu ásamt vini sínum. En hann hefur ekki gleymt mér. Hann hefur sent mér póstkort frá öllum þeim borgum og bæjum, sem hann hefur komið til. Solange var að hampa einu korti sem hún hafði fengið frá honum, eins og ein- hverskonar sigurtákni! Það var undir- skrifað m.eð „beztu kveðjum“ eins og kort- in mín, en merkingin á bakvið þau orð er öll önnur en hún heldur, veslingurinn; ég vorkenni henni, að hún skuli gera sér ein- hverjar grillur um hjónaband með Henri. Að vísu er hann bæði frjálslyndur og alþýðlegur, en ég býst ekki við því, að hann fari að velja sér dóttur óbreytts handiðnaðarmanns, sem ekkert á, og hvorki er fín í tauinu né af sjálfri sér. Hún kom til mín og sagði . . . rauð í framan . . . drottinn minn: „Ég held bara, að honum þyki pínulítið vænt um mig.“ — „Jæja,“ svaraði ég kæruleysislega. En þetta fór í taugarnar á mér, svo ég bætti við: „Hvers vegna heldurðu það?“ „Æ, af ýmsu. Til dæmis tók hann undir handlegginn á mér, þegar við fórum sam- an af tennisvellinum um daginn.“ Mig langaði mest til að biðja hana að halda sér saman og vera ekki með þessi ósannindi. Hann hefur örugglega ekkert langað til að sýna sig með henni, nema þá kannski af einskærri vorkunnsemi og góð- mennsku. Sannleikurinn er víst sá, að hún hefur hengt sig á hann; hún er ein af þessum stelpum, sem gefa undir fótinn og láta alla kyssa sig hvenær sem er. En önnur áhugamál hefur hún ekki, vesl- ingurinn; hún getur ekki tekið þátt í venju- legu samtali, svo ómenntuð og fávís er hún. Mánuduagwrinn 1. júní. Ég hef fengið kort frá Bordeaux. Henri segist koma til Parísar á mánudaginn. Eftir að ég hitti Solange hef ég verið í slæmu skapi. Karlmenn eru stundum hrifn- astir af heimskum stelpum, en ég get þó ekki trúað því, að Henri hafi svo slæman smekk. Pabbi spurði, hvort ég væri eitt- hvað lasin, og mamma hafði við orð, að ég væri svo súr á svipinn, að ætla mætti að ég hefði nærzt á ediki dögum saman. Ég get ekki hætt að hugsa um framkomu Henris við Solange; hann hefur bara verið 8 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.