Hljómlistin - 01.10.1912, Blaðsíða 4

Hljómlistin - 01.10.1912, Blaðsíða 4
2 HLJÓMLISTIN. Pétur Gruðjónsson 181*. *0. n«v. 101*. Æ íiágrip1 *). l3ÉTun Guðjónsson, organleikari, fæddist á Hrafnagili í Eyjafirði 29. nóv. 1812 og voru foreldrar lians Guðjón bóndi Sigurðsson, Grimssonar, Þorlákssonar, prests í Mikla- garði, Grímssonar, — og Guðlaug, dóttir Magnúsar prófasts Erlendssonar á Hrafna- gili og Ingibjargar Sveinsdótlur lögmanns Sölvasonar. Þau Guðjón og Guðlaug, for- eldrar Péturs, voru um hríð eftir að þau giftust hjá síra Magnúsi á Hrafnagili, en fóru síðan að húa á Munkaþverá i Eyja- firði; þaðan íluttu þau eftir fá ár að Sjávar- horg2) í Skagafirði og bjuggu J)ar 8 ár; þá tluttu þau að Litladal8) í Skagafirði og voru þar tvö ár og andaðist Guðlaug þar um sumarið 1827. Pétur hafði til þess tíma fylgt foreldrum sinum og verið fermdur á Sjávarhorg 1825 af Jóni presti Reykjalín, er þá var prestur til F'agraness og Sjávarborgar safnaða. Snemma bar á góðum gáfum hjá Pétri og var því móður hans mjög ant um að hann lærði skólalærdóm ef þess væri kostur. Mun það því hafa verið eftir til- lögum hennar, að afi hans tók hann til sín að Ilrafnagili um haustið eftir lát hennar 1827, til að kenna honum undir skóla. Þar var Pétur 2 ár og fór síðan aftur til föður síns, er þá var kominn að Dvergstöð- um i Grundarsókn í Eyjafirði og' hafði þá kvænst í annað sinn; hét sú kona Sigríður, dóttir Gísia bónda í Kristnesi í Eyjafirði. Eftir það var Pétur til kenslu hjá Hálfdáni stúdent Einarssyni, er þá bjó á Rúgsstöðum i Eyjafirði, en varð siðar prestur á Kvenna- brekku. Síðan lærði hann hjá Jóni presti Jónssyni á Möðrufeili í Eyjafirði og gekk þangað ýmist heiman frá sér eða var þar um kyrt. Haustið 1832 fór hann suður til 1) Æíiágrip þetta er eftir sira Einar Jónsson á IIoíi í Vopnaíirði. 2) Sjávarborg er í Sauðárhreppi. 3) Litlidalur er í Lýtingsstaðahreppi. Bessastaðaskóla og kom aldrei síðan á Norðurland. Hann náði inngöngu í efra bekk skólans og var þar hina lögboðnu 3 vetur og útskrifaðist þaðan 23. maí 1835 með góðum vitnisburði. Meðan hann var i skóla, varð liann að kosla sig að mestu sjálfur, því faðir hans hafði lítið allögum frá búskostnaði; en úr annari átt kom hon- um nokkur styrkur, því að amma hans, Ingibjörg, kona Magnúsar prófasts á Hrafna- gilisendi honum jafnan öll föt, er hann þurfti mcðan hann var í skóla. Að öðru leyti komst Pétur fram með vinnu sinni á sumrum. Þegar Pétur hafði lokið sl;ólanámi sínu, var það hin lielzta ósk hans að sigla og nema læknisfræði, en til |iess skorti hann fé. Prestur vildi liann eigi verða og réð því af að vera laus hin næstu ár, lil þess að vita hvort eigi ræltist svo úr fyrir sér, að hann gæti siglt. Var hann síðan næstu tvö ár við verzlun hjá Sivertsen kaupmanni í Reykjavík, en sumarið 1837 var hann skrifari hjá Stefáni landfógeta Gunnlaugssyni. Þá varð atburður nokkur í Reykjavik or- sök lil þess, að hann gat siglt. Reykvíkingar hötðu stofuað barnaskóla hjá sér 1830, og hafði Ólafur stúdent Einarsson Hjaltested verið þar kennari frá því árið 1831, en nú um vorið 1837 var honum veittur Saurbær á Hvalfjarðarströnd og vígðist hann jiangað 2. júlí s. á. Var nú kennaralaust við barna- skólann, en áð ráði varð J>að, að Pétur var kosinn til þess starfa, og þóttisl hann þá eklu vaxinn því verki nema svo yrði, að hann fengi þá mentun, er lil þess heyrði. En svo mikið traust höfðu Reykvíkingar á Pétri, að þeir vildu kosta miklu fé til, að að hann gæli aflað sér þeirrar mentunar, er nauðsynleg væri í þessu lilliti; kváðu þeir svo á, að hann skyldi sigla ogveraþrjú ár á kennaraskólanum í Jonstrup á Sjálandi og hélu að kosta hann að öllu leyti, þangað

x

Hljómlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.