Hljómlistin - 01.10.1912, Blaðsíða 9

Hljómlistin - 01.10.1912, Blaðsíða 9
HLJÓMLISTIN. 7 sökin til þess, sem Þjóðólfi þykir svo und- arlegt og ósldljanlegt, að hann neitaði að spila á organið þegar það kom úr aðgerð- inni 1860, nema hann fengi alls 400 kr. árlega fyrir það, er hverjum manni auðsæ, sem rétt gætir að, hæði af því, sem hér hefir sagl verið, og þegar menn gæta þess, hve há laun organleikarar hafa venjulega við kirkjur erlendis. Honum þóltu laun sin fyrir organsláttinn jafnan of lítil, eink- um þar sem hann fann það glögt, sem al- ment er viðurkent, að sérhver organleikari þarf að geta æft sig daglega í ýmsu, sem snertir organsláttinn, ef honum á eigi að verða ósýnna um hann, en hann mundi óska, en það var Pétri að mestu bannað með því, að hin föstu laun hans voru eigi nægileg til heimilisþarfa. En þetta gátu menn aldrei séð og þess vegna greip hann til þess óyndisúrræðis að reyna að neyða menn til að sjá það, er þeim annars gat eigi skilist viljuglega; en það tókst eigi heldur, og tók hann þá aftur að sér organleikara- störfin með sömu kostum og áður, til þess að sönglistin hefði eigi halla af aðgjörðum sinum í þessu efni. Pað varð eigi fyr en 1875, að menn könnuðust algjörlega við, að hann helði of lítil laun, og viðurkendu verðleika hans opinberlega, þá fyrst voru laun hans fyrir organslátlinn og sönglcensl- una hækkuð upp i 800 kr. og þá var það fyrst, að liann fékk nægilegt til að lifa af, því þá voru laun hans orðin alls 2200 kr. og hús hans orðið miklu léltara en áður, því nú voru börn hans ílest uppkomin og mörg þeirra gift og komin í góða stöðu, svo að þau gátu farið að endurgjalda hon- um áslrika og löðurlega umhyggju, cnda létu þau það ekki lengi bíða. Launaviðbót hans kom þannig fyrst þá, er hann þurfti hennar síst við, en engu að siður var það þó gleðilegt fyrir hann, að sjá það í elli sinni opinberlega viðurkent, að hann liefði únnið fósturjörðu sinni og hinni fögru list ómetanleg't gagn fyrir alda og óborna, Þegar vér lítum nú yfir æfiferil hans í heild sinni, sjáum vér, að hann hefir verið mjög ómjúkur og örðugur, og að það er fárra meðfæri að fela slíka leið með jafn- miklum árangri sem hann. Þeim einum er það unt, sem hafa jafneinbeittan vilja og hann og jafnmikinn kjark til að framfylgja honum. Þegar vér ennfremur gætum þess, hve vonda og óheilnæma vinnu hann hafði daglega, þar sem liann varð jafnan að silja við skriftir frá morgni til kvölds, þá má oss furða, að honum skyldi endast heilsa oglíf jafnlengi; en hann hafði sterka og trausta líkamsbyggingu og þoldi því rnikla áreynslu. Að visu var hann oft veikur af lifrarbólgu áður en hann varð stiptsskrifari og lá tvisvar mjög liælt í héíini, en siðan batnaði honum að fullu og var þar eftir jafnan heilsugóður, þangað til síðasta missirið, sem hann lifði, þá tók hann iðulega að kenna fótaveiki, og hljóp oft bjúgur í fætur honum, en batnaði smátt og smált aftur. Þó varð hún honum að lokum að bana. Sunnudagsmorguninn 19. dag ág. 1877 sat hann við fortepiano sitt og lék á það eins og vandi hans var til áður en hann fór i kirkju, og kendi sér þá einkis meins svo að vart yrði við. Kona hans gekk þá eitthvað burt úr stofunni og var burtu lítla stund, en er hún kom inn aftur, bjóst hann í kirkjuna og var að fara i kápu sina. Sá liún þá að hann skalf og titraði allur og var mjög óstyrkur, og spurði, hvort hann væri sjúkur, en hann kvað litil brögð að því. Hún hað hann að fara ekki í kirkjuna í þetta sinn, en fékk eigi aftrað honum; kvað hann þetta nnmdi frá líða er þar kæmi; enda vildi hann aldrei sleppa að gegna störfum sínum, nema hann væri algjörlega neyddur til þess. Fór hann svo í kirkjuna, þótt hann væri veikur, en er þar var komið, versnaði honum svo, að hann treystist eigi að leika á organið eða syngja sökum óstyrkleika, og varð þvi að fara burt aftur og komst með nauðung heim til sín. Lagðist hann þá rúmfastur og hafði fengið illkynjaða bólgusótt (phlegmone dif-

x

Hljómlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.