Hljómlistin - 01.10.1912, Page 15

Hljómlistin - 01.10.1912, Page 15
HLJÓMLISTIN. son tengdasonur hans, verið formaður þess. í lelagi þessu eru nú sem stendur 9 menn. IJá er lúðrafélagið Harpa, stofnað 16. maí 1910. Aðalstofnandi þess er Hallgr. Por- steinsson organisti og hefir hann verið for- maður þess þangað til á síðastliðnu vori, i mai. Síðan er þar formaður Pórliallur Árnason frá Narfakoti í Njarðvíkum, Fé- lagsmenn eru 10. Þá er hið þriðja, Sumavgjöiin. Það er lúðrafélag K. F. U. M., stofnað af 9 yngis- sveinum fyrsta sumardag 1912. Formaður þess er Guðbjörn Guðmundsson, en kenn- ari félagsins er Hallgr. Porsleinsson, organ- isti. Nú eru félagar þess 18. Lúðrafélag þetta hefir ekki látið til sín heyra opinber- lega enn þá. Um lúðrafélög úl um land er oss ókunn- ugt, þó munu þau hafa verið á ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum, Eyr- arbakka, Hafnarfirði og máske víðar. — Æskilegt væri að geta fengið skýrslur um félög þessi og önnur söngfélög. Hljómlistin er ætlasl til að verði mánaðarblað og komi út til októbermán. n. á.; verða í því myndir islenzkra söngfræðinga öðru hvoru, og ef til vill, lög nokkrum sinnum, en þó að líkindum oftast útlend. Annars verður hún aðallega sundurlausar hugsanir og greinar, sem eiga að vera fræðandi, þó um »músik«. Blaðið verður á stærð við »Sunnanfara« og kostar eins og hann kr. 2,50 um árið. Það á ekki illa við að gerð sé tilraun með að gefa út »músikblað« nú á 100 ára af- mæli Péturs Guðjónssonar, en fjarri fer því, að sönglíf og söngmentun hjá oss íslend- ingum sé svo langt á leið komin, að slíkt blað geti þrifist eða orðið að nokkrum veru- legum notum; til þess þurfa að vera komin 13 á fól fullkomin söngfélög, og meiri fram- för í hljóðfæralist, en nú er enn orðin. — Vér erum á barndómsskeiði í þessari fögru list, sem í rauninni er fegurst allra lista og nú orðin víðtækust i heiminum. En söng- menn eru hér góðir og hafa ávalt verið og i töluverðri framför er líka söngmentun öll hjá oss, þótt hægt fari. En þeirri töf, sem orðið hefir á framför sönglistarinnar, veld- ur að mestu leyti efnaleysi og fjarlægð milli þeirra, sem þó hata áhuga á henni. At- vinnugrein hjá oss er sönglistin ekld, því þótl organleikurum við kirkjur sé greidd einhver þóknun, þá er hún allstaðar oflítil til þess, að þeir geti stundað starf sitt eins og þörf er á, og kent og æfl söngflokk heima hjá sér. Til þess þarf reglulega söng- mentun og góða undirbúningsskóla, og enn er ekki lengra komið en svo, að það er allvíða látið nægja ef organleikarar hafa þann fimleik og' kunnáltu í nótnalestri, að þeir geti skammlítið komisl fram úr al- mennu sálmalagi. Hljómlræði haía fæstir þekt til skamms tima, en all er það þó hjá oss á framfaravegi. Fyrir nokkrum árum þótti það nýlunda ef menn héðan lögðu hug á að framast er- lendis í sönglist, en nú eru margir ungir og efnilegir íslendingar á söngskólum ytra, bæði í Danmörku og á Þýzkalandi og sumir orðnir fullnuma. Með þeim koma kraft- arnir heim, ef vér þá getum tekið á móti þeim og sýnt að vér viljum nota krafta þeirra og kunnáttu. Tvo ágæta söngfræðinga eigum vér, sem um langan tíma hafa verið ytra og haft þar góða slöðu, en lieima mundu þeir ekki hafa getað unað við þau kjör, sem vér hefðum getað boðið þeim. Þessir menn eru Sveinbjörn Sveinbjörnsson kennari og tónskáld i Edinborg og Ari Johnson, sem lengi hefir verið í Hamborg. Nefna mætti og Jónas Pálsson, pianóleikara, er hér var á ferð i sumar; hann er í Winnepeg og hefir fengið góða mentun. Vonandi er að honum takist að glæða sönglíf íslendinga

x

Hljómlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.