Hljómlistin - 01.03.1913, Qupperneq 8
48
HLJÓMLISTIN
Hljómleikar
voru haldnir í Bárubúð sunnudag 2. marz
undir sljórn herra söngkennara Brynjólfs
Porlákssonar, og var þar einhver hin fjöl-
breyttasta söngskrá, sem menn hafa átt að
venjast hér, enda var vel sótt, og húsið
næstum troðfult. Söngskráin var þriskift:
1. P. Bernburg með í) manna orkester.
2. Stór söngsveit l)arna úr efri bekkjum
harnaskólans söng nokkur lög undir stjórn
Brynj. I’orlákssonar. 3. Sjálfur lék hann
nokkur lög á normal-harmonium. — Allur
tókst samsöngur þessi yfirleitt prýðisvel.
Að eins má finna það eitt að, að þar var
of mikið fram borið fyrir fólkið, því að
samsöngurinn stóð yfir fulla tvo tíma, og
var þó lítið hlé á milli. Brynjólf Þorláks-
son þekkja hér allir að því, að hann fer
manna bezt með hljóðfæri sitt, enda lék
hann svo prýðilega, að mesta yndi var að
heyra sum lögin hans. Sömuleiðis hefir
hr. Bernburg og ílokkur hans skemt fólki
vel hér í bænum, en lögin, sem.hann lék,
voru helzt til löng og tóku ol' langan
tíma á svona fjölbreytlum samsöng. Mesta
undrun vakti söngur harnanna, sem tókst
ágætlega; þau voru nál. 50, og er vandi að
æfa svo stóran barnahóp, að öll verði þau
samtaka, því að þar þarf lag lil og góða
stjórn, en svo vel hefir Brynjólfi tekist að
æfa þau, að þar var ekki nokkur misfella
á, og mátti þegar sjá það, er þau kornu
inn og röðuðii sé upp á pallinn, að þar
vissi hvert þeirra hvar það álti að vera og
hvað það átti að gera; það var eins og
þar kæmi fram þaulvön og ófeimin söng-
sveit.
Hljómleikar þessir hafa tvívegis verið
endurteknir með nokkrum brejfiingum.
Flokkur hr. Bernburgs var að eins í fyrsta
skiftið. —
Ráðgert hefir verið að halda nú á þessu
ári samsöng í Vínarborg, þar sem sungin
verða eingöngu islenzk lög, og hefir nú
nýlega verið leitað ráða til Sigfúsar Einars-
sonar um þelta og hann beðinn að senda
félaginu lög, og verða þau sungin á ís-
lenzku. í framburði málsins nýtur félagið
aðstoðar norrænuprófessors í Vín. Félagið,
sem ætlar að syngja, er Akademischer Ge-
sangverein tekniska háskólans, stofnað 10.
marz 1892, og er það lalið eitt með beztu
söngfélögum í Vínarborg.
Wagners-söngfélög eru til út um allan
heirn er syngja nálega eingöngu lög eftir
Richard Wagner, tönsnillinginn fræga. Nú
i vor, 22. maí, er aldarafmæli hans og eru
slik söngfélög farin að hafa viðbúnað til að
fagna þeim degi. Ekkert tónskáld 19. aldar-
innar hefir náð jafnmikilli frægð og hann
og um l'á stórmenni heimsins hefir meira
verið rilað.
Eitthvert liið stærsta orgel í Vínarborg
er það, sem þar á Söngsamkomusalurinn
mikli (Grosser Musikvereinsaal) og þeir
bræðurnir Rieger bygðu 1907 i Jágerndorf.
Það hefir 72 raddir, fjóra »manúala«, pedal
og 5198 pípur. Orgel evangelisku kirkjunn-
ar þar, bygt 1807 (með 18 röddum), en
endurbygt 1907 með 22 röddum, hefir 1250
pípur, 2 man. og pedal. Önnur orgel eru
þar ílest nokkuð minni. Vínarboi’g er ein
af helstu söngborgum heimsins.
Prentvillur í siðasta blaði (febrúarblað-
inu) eru tvær á bls. 37, síðara dálki:
Kaupholti á að vera KamphoUi, og í
neðstu línunni: Bollagörðum á að vera
Bollastöðum.
MVisík verður með næsta blaði.
Picnlsraiöjaa Gutenberg.