Heimir - 22.11.1904, Blaðsíða 11

Heimir - 22.11.1904, Blaðsíða 11
H E I M I R 107 mæluin", firrast aS ljá þcim eyra, forSast þau og flýja. Og svo þegar komiS er í kyrkjuna, þá er þaS sama á takteinum, saina guSspjalliS og lesiS var fyrir þenna sama sunnudag áriS er leiS, sama útleggingin á því, oft á tíSuin sama ræSan flutt í sama tón, sarna kenningin um réttlætingu af trú, saina fordæmingin uin verkin, sama eftirgangssemin meS gjöld, offur, „tíundir á myntu og kúmeni". Og hvaS er þaS þá, er laSar inenn svo aS sækja kyrkju, aS þeir tæmi húsin til þess aS safnast undir þess kyns lestur? VerSur ekki mörgum sú raunin á, aS þegar mest reynir á, þá rnæta þeir þar „steinblindum augum"? Og hefir ekki marg- ur landi vor hér vestra snúiS frá vorum vestur-íslenzku kyrkju- dyrum meS hroll í hjarta, hneykslaSur á æru og velsæmistilfinn- ingu sinni meS því, er þar hefir fram fariS ? Kyrkjuræknin sannar alls ekkert. Hún er enginn mælikvarSi menningar og siögæöis. Vér þurfurn ekki annaö en minna á þaS, sem Kristur sagöi viS Faríseana forSum um föstur þeirra og bænahald. Munurinn á sjálfhælninni, „eg fasta tvisvar í viku" og „eg sæki kyrkju tvisvar á sunnudegi", er ekki svo ýkja mikill. Ef hiö fyrra heimilar ekki manninum „efstu sætin", svo mun og hiS síöara ekki gjöra þaS. Fyrst ritstj. vill klæöa hugleiöingar sínar um menningarbar- áttu íslendinga í trúfræöislegan hjúp, heföi hann átt aS taka af- stööu kyrkjunnar til íhugunar. ÞaS er ekkert ljósara dærni þess, hvar menn standa, en þaö, hvar kyrkjan þeirra stendur. Því kyrkjan er og veröur æ- tíS þaö, sem meölimir hennar eru í andlegum skilningi. Sé hún þröng, öfgafull, andvíg allri andlegri framþróun eSa sé hún rúm, frjáls, lífiö og sálin í allri framför þjóöfélagsins, svo eru og þeir er innan hennar búa. Hún opinberar hina réttu mynd almenn- ingsins. Og þegar vér lítum á hana, þá sjáum vér, ekki í „gegn um gler í ráögátu", heldur augliti til auglitis, hversu mennirnir eru. í staS þess aö leggja allt upp úr kyrkjugöngu og trúrækni, eins og ritstj. gjörir, þá heföi hann átt aS brýna fyrir mönnum skylduræknina. Þar sem skylduræknin er vel vakandi, er er enginn skortur á göfugri trú, engin missmíö á félagsmálum. Ef menn sækja ekki kyrkju af sannfæringu um, aö þeim beri að

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.