Heimir - 01.02.1906, Síða 22

Heimir - 01.02.1906, Síða 22
46 Ií E I M I E heli eg messaS hér fyrir laglegum hóp í hvort skiíti, og í kvöld ætla eg aö tlytja fyrirlestur: „Frá öörum heimi", kalla eg hann. Hver veit nema eitthvaö sjáist á prenti af honum seinna.Næstu viku verö eg í Marietta og býst viö aö fara til Seattle, Tacoma og Point Koberts. Þá er eg alveg óráöinn hvaö eg gjöri. Ekki heíi eg enn þá hitt einn einasta mann, sem ekki er frjálslyndur í trúarskoöunum. Þeir eöa þær geta náttúrlega veriö til hér, en eg heíi ekki oröiö var viö þá. Hvaö kyrkju- félagiö kann aö geta áunniö hér, læt eg ósagt, en grunur minn er sá, aö menn veröi hér þungir fyrir. En ótfaö er hægt að vekja hé'r illdeilur og þrætur. Þetta frjálslyndi hér svona alment er aö nokkru leyti eöli- leg afleiöing af hinni afarmiklu breytingu á högum og landslagi og loftslagi. Vér sáuin þaö austurfrá aö viö Islendingar konr- um aö heiman í nýja álfu, þar sein alt var öðruvísi en heima, tungan, þjóöin, lífshættir, landslag og veörátta. Vér komum þar í nýja heima. Viö fórum aö starfa og viö fórum aö hugsa, miklu meira en áöur. Nú koina menn af sléttunum, úr brenn- andi sumarhitum og nístaudi vetrarfrostum, vestur á þes:a strönd, og koma þar aftur inn í nýja heima, alveg ólfka þeim, sem þeir liföu í áöur. Þeir sjá hír hin snjókrýndu ljöll, hina tröllslegu skóga, hið mikla úthaf. Þeir sjá hér indæla iirði og víkur, blómlega aldingarða og sígræna jörð. Þetta altsainan vekur í huga þeirra nýjar hugmyndir, andi þeirra verður miklu víðtækari, sjón sálarinnar veröur miklu skarpari. Hinar gömlu hugmyndir eru prófaðar og vegnar og vei þeim, sem léttar finnast. Náttúrlega er þaö margur maöurinn, sem hefir komið frjálslega hugsandi hér vestur, en hinir sem ekki hafa vaknað þar af ýmsum ástæðum, þeim er mjög hætt viö aö valcna hér, og vakna þá stundum af illum draumi, og veröa glaðir þegar þeir sjá blómin gróa og sólina skína um himingeiminn. Þeir kæra sig þá ekki um aö sofna aftur og fara að dreyma drauina vonda og ljóta. Enda sést þaö ekki á neinu hér aö fólk breyti ver á nokkurn hátt en þar, sem kyrkjan er í algleymingi. En það eitt er víst að hér er dálítið minna af hræsni og tvöfeldni, en sumstaöar annarstaöar.

x

Heimir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.