Heimir - 01.12.1906, Page 3

Heimir - 01.12.1906, Page 3
H E I M I R 171 Auönin og víöáttan er hér nóg. Enda er þegar verk það hafið og hálfnað. Meö hverju ári eru altaf fleiri og fleiri kaliaðir á burt. Bráöum eru þeir allir horfnir, er fyrstir leiddu þjóðar- brot vort:, setn hér á heima, hingaÖ tii lands. Hvort nokkru sinni verði hreyft við kumblum þeirra, er enn þá ósögö saga. En gleymist þjóöerni vort og glatist tung- an, er það mjög óvíst. Mörgum gleymist tiú, er þeir ganga eða aka að sumarlagi um bygðir vorar, fram meðbleikum ökrum og slegnum túnum, hversu eyðimörkin breyttist í blómlega bygð, hversu brautin varö slétt og gatan gerö bein, hví kornstangirn- ar í hópum og hnöpputn teygja sig nú mót himni og gára hæöir og hóla. Guðhræddur maður mymdi segja, aö það væri af því að þær væri að vegsama guð— til að geta sér einhvers til,— en stöku nýlendusonur ætti þó að skilja það betur. Þær hafa fengið þann frjóvgunarkraft, sem öllum er dýrkeyptari, blóð og svita landnemans. Díf landnemanna öldnu, heilsa þeirra og kraftar, setn til moldar eru gengin með þeim, rís upp á hverju vori í kynja krafti og vexti kornstangarinnar til.lífs og viðhalds börnunum, er þeir eitt sinn fluttu í faðmi sínum vestur um haf, en sein nú er orðið vaxiö og fullorðið fólk. „Enginn getur elsk- að vini sína meira en það að hann leggi líf sitt í sölurnar íyrir þá" hei, og ekki börn né vandamenn. En eiga þá þau börn að hjálpa til að grafa þá gröfrtu dýpra í gleymsku og þá lifendu sem óðuin fækka, dýpra í þögn? Hafa þeir, sem ofar eru jörð og nú láta mest á sér bera, unnið alt, sem hér hefir veriö gert? Eru þeir öll sagan frá upphafi til enda? —--- Heimir játar að það eru fleiri en þeir, sem hann fiytur tnyndir af í þetta sinn, sem „ruddu þá leið til áfangans, þar sem við stöndum", en ef efni og aldur leyfir, verður kannske myndasafn það stærra áður en lýkur. * * * BRYNJÓLFUR BRYNJÓLFSSON Það voru ekki eingöngu kögurbörn Islands sem fluttust af landi burt til Vesturheims fyrri á árum. Þegar fyrst vöknuðu vesturfarahreifingar, voru það þeir hugumstærri, er riðu á vað-

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.