Heimir - 01.12.1906, Síða 5
H E I M I R
i/3
Brynjólfs Magnússonar og Sigríöar konu hans, er þar bjuggu
iengi. Brynjólfur ólst þar upp í dalnum. Ariö 1864 hélt hann
brúðkaup sitt að Alfgeirsstöðum í Efribygð í sömu sýslu, og
gekk að eiga Þórunni Olafsdóttur Bjarnarsonar, húnvetnska að
œtt.
Fnum árum síðar fluttu þau hjón vestur í Húnavatnssýslu
og reistu bú í Forsæludal í Vatnsdal. Þar bjuggu þau í 9 ár,en
fluttust þá aö Skeggstöðum í Svartárdal og bjuggu þar, þar til
þau Huttust af iandi burt til Ontario 1874.
I Ontario dvöldust þau að eins skamina stund og fluttu
sama ár til Halifax County í Nýja Skotlandi. Þar var þá að
myndast dálítil íslenzk bygð nálægt kauptúni, er Musquodoboit
hét, en bygðin var nefnd Markland, eftir Marklandi hinu forna.
En bæði var það, að landiö reyndist hrjóstrugt og kosta-
rýrt og þeir undu þar lítt hag sínum, og svo hafði líka fundist
frjóara land og betra vestur í Bandaríkjunum, enda varð ný-
lenda sú skammlíf. Eftir 6 ára dvöl flutti Brynjólfur þaðan;
tafðist vetrarlangt í Duluth ( Minnesota og korn til Dakota
1882. Hann festi sér land vestanvert í Pembina County, er
um þær slóðir var þá aö byggjast af Islendingum, sumum er
komu þá frá Islandi og öðrum er um þær inundir flýöu stór-
plágur Nj'ja Islands. Bær hans stóð í miðri norðurbygð svo jafn
langt var milli beggja íslenzku kaupstaðanna Víkur (Mountain)
og Hallson, rúmar 3 inílur enskar, og lá þjóðbrautin úr hlaði.
Eins og flesturn Islendingum, var Brynjólfi þegar strax er
hingað kom til lands mikið áhuguefni aö öllu því ný'tilega er
menn átm í fari væri sem bezt viðhaldið og verndað frá glötun
og gleymsku. Sjálfur var hann inanna fróðastur um flesta ís-
lenzka hluti. Hann var kappsamur, fylginn og manna ósér-
plægnastur, vinur allra vesturfara að því, að hann vildi þeirra
allra heill. Hann var því sjálfkjörinn öndvegishöldur bænda
þar um bygð, enda leið skammur tírni frá því hann settist að í
Dakota, þar til allir nýlendubúar virtust hafa haft glögg kynni
af honum og heimili þeirra hjóna varð aðalráðhús bygðarinnar,
er fyrir norðan og austan lá. Hefði nýlendumenn átt aö setja