Heimir - 01.12.1906, Page 8

Heimir - 01.12.1906, Page 8
HEIMIR 176 * Því iniöur er ekki rúm til aö fara ýtarlega út í starfa þess- ara inanna um þetta leyti, en aöalsvaramenn félagsins voru þeir Brynjólfssynir, er til rnannamóta og ræöuhalda kom, eri heima fyrir, viö gesti og gangandi Brynjólfur sjálfur. Hann lét ekkert tækifæri ónotaö aö tala fyrir mönnum skynsemi cg vit. Og andst.eöingar hans létu heldur ekkert tækifæri ónotaö aö sverta orð hans og verk í félagsþarfir, en lítiö ávanst þeim í því efni. 1889 varö burtflutningur úr bygöinni og fluttu margir ft'- lagsrnenn. Félst þá til ærinn starfi af ööru tagi, og hætti félag- iö brátt fundahöldum, en þaö haföi unniö sitt verk. Fram á þenna dag betir Brynjólfur sarnt lialdiö áfram meö þeiin sama áhnga og áöur aö útbreiöslu frjálsra skoðana. I Sept. 1892 andaöist Þórunn kona Brynjólfs og sex árum síöar brá hann þá búi, og hefir síöan mestan tíma dvaliö hjá Magnúsi lögmanni syni sínum í Cavalier í Dak. Alls eru börn Brynjólfs sjö: Tvær Sigríöar, Olafur, Jónas, Skafti fyrv. þingm. Dakotaríkis, Björn lögmaöur í Grand Forks og Magnús héraöslögmaður í Cavalier N. D. Brynjólfur er vel meöalmaður vexti, grannur, beinvaxinn og hiö mesta snyrtimenni, bláeygur og skíreygur, röddin þung og atkvæöamiki), svipurinn allur fyrirmannlegur. Hann er nú hniginn mjög aö aldri, en er enn viö góða heilsu. Ákafamaöur hefir hann ætíö veriö og aldrei hrasandi og hálfur í neinu, er hann hefir tekið fyrir. Hann varö því drýgri í viöskiftum viö andstæöinga sína í skoöanamálum en nokkur annar, er enn hefir komiö við sögu vora hér vestra. Fyrri á árum ritaöi hann mikiö í blööin, aöallega var þaö þó „Hkr.", er hann var meöeigandi í. Eitt srnárit varð mönnum tíðrætt um þá, er nefnt var ,Höfuð- presturinn í Israel", og kom út með „Hkr." Var B. höf. þess. Enginn hefir ástsælli veriö af yngri mönnum en hann, hefir hann og jafnan veriö ungur. Er þaö ósk og von Heimis, aö gamalmennið unga eigi mörg og friösæl ár enn aö baki,—aö hans æfinnar gamlárskveld veröi æ fagnaöarríkara og bjartara, unz hann flytur á burt út fyrir rökkurtjöldin inn í friðarheiminn eilífa og góöa. [Framhald í næsta blaði]

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.