Heimir - 01.12.1906, Page 10

Heimir - 01.12.1906, Page 10
17« H E I M I R Fjallgangan. ------------- Þykk og öskugrá þokuský höföu byrgt sólii a niest allsn daginn, en rétt fy^rir sólsetriö rofnuöu skýflókarnir, svo hún náöi til aö skína út á milli bólstranna og varpa gullinni blæju yfir fjöll og dali. Og í sömu andránni nam göngulúinn ferða- maöur staöar á heiðarbrún og rendi hvössum augum austur uin héraö mikið og fagurt, er nú blasti viö augum hans. ,,Hér lít eg þá loks hiö lengi þráða land“, hugsaöi hann. ,,Hér er golt aö vera, og víst fagna eg nú yfir því aö hafa ekki látiö hættur eöa þrautir telja mér hughvarf. En annaðtveggja er nú, aö mér förlar sýn, eöa móöa mikil rís hér austur á völlunum og bannar útsýni nema spölkorn frá fjallarótunum." Hann haffci komið langt aö þessi göngumaöur. Snemma morguns haföi hann yfirgefiö heiinili feöranna f þröngri dal- skoru langt fyrir vestan öræfin. Þaö var svo þröngt í dalnum, að hann sá engin tök til að komast þar áfram. Hann haföi heyrt aö fyrir austan ómælilega fjallageiminn, er blasti viö auga af vestari dalbrúninni, væru fögur og frjó héruö. End- ur og sinnum höföu kjarkmiklir menn lagt á öræfin í leit eftir víðara verksviöi og betri sveit. Sumir þessara höföu snúið aft- ur og sagt, aö þó þröngt væri í dalnuin, væri þó betra aö búa þar, en aö berjast við illviöri á fjöllum uppi. Aörir höföu aldrei komiö aftur og engar fréttir frá þeim borist. Dalbúum var því óljóst hvort þeir heföu komist af eöa orðið vörgum aö bráö á öræfunum. Þaö síöara var taliö líklegra, enda makleg laun fyrir gjörræði þeirra, aö yfirgefa óöul feðranna til aö kanna ókleif fjöll, sem öllum voru ókunn. Alt þetta var gönguinanninum kunnugt. Hann haföi líka hugsað sér allar mannraunir, er vænta mætti á veglausum ör- æfum, en hann var á bezta aldri, hugmikill og sterkur. Hug- rakkur lagöi hann því upp úr dalnum og nam ekki staðar fyrri en upp kom á heiðarbrúnina fyrir austan dalinn, þar nam hann staðar og leit 'niöur í dalskoruna, þar sem hann haföi aliö aldur sinn, þar sem hann svo oft haföi leikiö sér „að skeljum á hól"

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.