Heimir - 01.12.1906, Blaðsíða 13

Heimir - 01.12.1906, Blaðsíða 13
þaö maöurinn, sem nú var umhverföur í bleik og skinin bein? Eöa haföi annar gert það síöar? Upp á þessar spurningar fékst ekkert svar.—Vindurinn óx og hvein hátt í klöppinni og með hverri hrinu heyröist nú göngumanninum sagt „snúðu aftur, snúöu aftur". Atti hann aö hlýða þessum ítrekaöa boðskap, er barst honum áþreifanlega, þar sem beinagrindin var sýnilega, þar sem orðin voru rituö á blaöinu og ímynduninni barst hann skilmerkilega í hrinum stormsins. Var þaö karlmannlegt, var það viturlegt, þegar ekki voru eftir nema fáein fótmál upp á þá sjónarhæð, er hlaut aö sýna hvort vonin eöa kvíöinn heiöi meira til stns máls,—kvíöinn, aö annar enn ferlegri fjallgaröur væri lengra austur, vonin, aö þetta væri hasti og erfiðasti fja.ll- garðurinn ög aö öll þraut væri á enda, er yfir hann væri komiö. Vfar það viturlegt að snúa þarna aítur? Nei, aftur skyldi hann ekki snúa aö svo stöddu. Hann var kominn of nærri fjallsbrún- inni til þess aö snúa aftur án þess aö skygnast eftir hvaö beið manns fyrir handan jöklana. Og svo bjóst hann til hvíldar og svefns viö hliðina á beinagrindinni. Þar lét hann fyrirberast, og þaö alla nóttina, í svefni og í vöku var sem tvær skipandi raddir segöu á víxl í eyru honum: „Snúöu aftur". „Óttastu ekki. Leita og munt þú finna“. Gistingin í skútanum var köld, en hress og afþreyttur reis göngumaöurinn á fætur meö morgni og gekk í annaö sinn upp fyrir klapparhyrnuna, til aö líta á leiöina framundan. Tók liann þá eftir því, að á bláhamri gljúfursins stóöu litlar stein- yddur liér og þar upp úr hjarninu, og ekki lengra en svo á milli aö seilast mátti af einni til annarar. Einmitt þarna varö hann aö fara, eöa aö öörum kosti aö klifra niður aftur sömu leiö og hann kom og leita aö uppgöngu í öörum staö. Hann haföi áö- ur leitað eftir líklegustu uppgöngunni og hún virtist vera ein- initt hér, en ekki annarsstaöar. Því þá aö hika? Því ekki aö treysta á steinyddurnar upp úr gaddinum? Þaö var aö vísu ekki árennilegt, því hann þurfti þá hálfur að slúta yfir gínandi gljúf- ur, en hálfur hvíla á glerhálli snarbrattri fönn. ,,Víst geyinast bein mín eins vel í gljúfrinu því arna eins og annarsstaöar, ef svo vill verkast“, hugsaöi göngumaöur,

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.