Heimir - 01.12.1906, Side 16
HEIMIR
184
ing. Kom þú með oklcur og skulum við ábyrgjast þér fljóta og
greiða ferð."
Þannig létu allir ferjumennirnir daluna ganga og lá við
stundum að í ilt færi, er eirm lýtti og vítti far hinna fram
úr hófi. Ovanur slíkum ilideilum sleit göngumaðurinn sig úr
þvögunni og sneiddi hjá öðrum slíkum. Mitt á meðal þessara
æðandi ferjumanna tók hann þá eftir hvar ferjumaður stóð
og hafðist ekki að. Sáu þeir hvor annan jafnsnemma og á-
varpaði þá ferjumaður göngumanninn undireins og bauð hon-
um far með sér. ,,Ferju minni hrósa eg ekki sjálfur“, sagöi
hann, ,,en kom þú, vinur, og skoða hana gaumgæfilega sjálf-
ur. Lítist þér hún nægilega traust, þá tak þér far með inér,
ef ekki, þá skiljum við jaingóöii vinir fyrir því. Fargjaid er hér
ekkert ákveðið, en hver og einn borgar eins og hann álítur
sanngjarnast, eða eins og efni ieyfa. Þeir sem ekkert eiga,
eru jafn velkomnir og þeir ríku. Þeir sem betur mega borga
inismuninn. Þetta eru reglur okkar,' én kom nú og skoða
ferjuna'*.
,,Vel líst mér á ferjuna, en betur þó ef unt er á reglur
ykkar“, sagði þá göngumaðurinn. ,,Og ineð þér tek eg far
yfir íljótið. En seg mér því breytni ykkar hér á ferjustaðn-
um og reglur ykkar allar eru svo ólíkar breytni og reglurn
allra hinna?“
,,Munurinn kemur af því“, sagði ferjumaðurinn, ,,að þeir
leggja ekki eins mikla áherzlu eins og við, eða eins og við
reynum að leggja á, að framfylgja í öllu þessu mannúðar-
boðorði meistarans:
,,þaff scm þcr viljiff aff mennirnir gcri yður, þaff cigið
þér líka þeim aff gera “.
Norlinguk.
(9"