Heimir - 01.12.1906, Blaðsíða 31

Heimir - 01.12.1906, Blaðsíða 31
IIE I M I R 199 gagnslaust væri aö lesa, Menn vara við hættulegum bókum, <og stuudum eru þ.er bækur hættulegar, sem svo eru kallaöar. En Uættuiegar eru ekki þær bœkur einar, 'sem reyna að vekja íýsnir ungra iesenda eða auka léttuð þeirra og leti, heldur og þær, sein gera mikiS úr því eöa dást að því, sem er einskis- vert eöa ómannlegt, eöa breiöa út hieypidóma og gera frjáls- Syndi og framfaraviðleitni tortrj-ggilega, Gagniö og skaösetnina, hættuna og hættuleysiö veröur þó aö tniöa við hvernig á stendur. Bækur, sem gefa barnaiegar og þvt villandi ímyndir af mannseðíinu (eins og t. d. hinir sögu- legu rótnanar íngemanns), má ef til vill fá í hendur io~—12 ára börnum, án þess þau hafi iit af því, en eldri börn er hætt viö aö slíkar bækur -geri ónýtari, Bækur, seni fullorðnir menn hafa ekkert gagn af að lesa, geta verið skemtandi og gagnlegar fyrir börn. Á sansa hátt eru til tnargar bækui', sem lýsa löst- um og ástríðum, án þess að það sé gert í illutn tilgangi, og væri rangt að leyfa unglingum að lesa þær, en þær geta eigi aö síður verið hæfar fyrir þroskaðri menn og ste.kari á svellinu, og eru því í sínu gildi. Leiðinlegar bækur eru nær því jafnillar og skaölegar bæk- ur, og það er hjátrú að virða nokkurs þá alvöru og þann lær- dóm, setn okkur finst leiðitilegur. Leiðinlegar bækur fæla les- andann írá að afla sér þekkingar. Sögulegar bækur eru t. d. oft voða-leiðinlegar; menn strit- ast við að !esa í þeim og telja það skyldu. Eyddu ekki tíma þínum á svo hnj'óskþurru svæði, nema þú séit að leita að ein- hverju. Brjóltu ekki tennurnar á því grjóti. Sagan getur ver- iö og á að vera skemtilegust allra námsgreina. Mér finst þaö vera enn þá skemtilegra, að fá aö vita um menn, sem hafa ver- iö til.en um hina, sern ekki hafa verið til, þótt þeir séu búnir til eftir réttum fyrirmyndum. En söguritararnir leggja stundum of iítið á sig, lýsa mönnunum að utan, án þess þeir hafi kannað innviðuna. Eg sat eitt kveld í þýzkuin háskólabæ við hliðina á prófes- sor í sögu, og sagði hann mér að hann væri að rita sögu Both- wells, vinar Maríu Stuart, sem drap Darnley. Mér varð að

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.