Heimir - 01.12.1906, Side 36

Heimir - 01.12.1906, Side 36
20\ HEI MIR seðlinum hans. En okkur verður það ómögulegt. Hann veit að scr er óhætt; sjáðu brosið á honum!" „Djákni", sagði eg, „við veiöum að ná þessum $5 út úr honum einhvernveginn. Láttu ekki nokkurn n ann, konu eða barn sleppa, þegar þú ferð eftir samskotunum". „Trúið rnér", svaraði hann. Það var vani hjá okkur djáknum að viö fórum með diskana milli messufólksins meðan verið var að syngja sálminn og það- an frarn í andyrið og töldum þar peningana, en annar skrifaði á miða upphæðina og fengum svo prestinunr miöann, svo hann gæti tilkynt frá stólnum hvað upphæðin væri, Það var sungin sálmur venju fremur langur þetta kvöld, og það voru eftir mörg vers þegar við Páll fórurn að telja. Þegar við vorum bún- ir, horfðum viö hvor framan í annan, og loks sagði Páll: „Fólkið rieirr gert sitt bezta, en þaö er ekki til neins við------". „Níu dalir 33 cent uppá $45", sagði eg. „Hann fer heim með sína $5 aftur, sá góði mann. En skrifaðu niður fljótt". Og hann upp með blýantinn, en stanzaði við urn eitt augna- blik. Þeir voru rétt að byrja að syngja síðasta versið. „Eg skal segja þér", sagði hann, „við skulum geia aðra atrennu að hafa þá út úr lronum". „En hvernig?" „Hvernig. Sjáðu nú til. Tókstu eftir því aö hann harð- lokar augunum í hvert skipti sem hann flytur bæn?' „Já, hvað unr það?" sagði eg. „Hvað um það. Hann hlýtur að hafa bæn nú á eftir þess- um sálini. Og þá er tækifæri. Við skulum snrokra okkur gæti- lega á milli fólksins og fá það ti! að gefa svolítið nreira. Og ef það vill ekki gefa, þá að fá lánað hjá því. En þessa $9.33 verðunr við að fá. Far þú til ekkjunnar hans Allans, hún fékk lífsábyrgðarpeninga eftir nranninn, og til Jóseps og bróður Rik- áls. Þú getur hvíslað að þeim hvernig sakir standi, en blessað- ur láttu hann ekki heyra hvað standi til. Eg skal gera hvað eg get. En við skulunr bíða þangað til hann fer að biðjast fyrir. Páll var glúrinn karl, það var það sem hann var, og eg var

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.