Heimir - 01.12.1906, Page 40
208
H E I M I R
Pistill Einars Hjörleifssonar í ,Norðurlandi‘.
---•----
Þaö hefir skilist á ýinsain, að Heimir hafi sagt of inikið
eða verið of berorður í ritgerðinni: „Leiðtogarnir og blöðin".
Oss er það að vísu ekki mikill harmur þótt eiuhverjir kunni að
h'ta svo á það mál. Það er skoðun vor, að hver saga ætti að
segjast eins oghún er, en ekki vera færð í stýl kaffi-snakks eða
bæjarslaðurs. Það er bæði veigalítil kurteisi og vesall fínleiki,
sem ekki þola að sagt sé satt. í þessu efui inætti benda þeini
hinum söinu á kafia þann, er hér fer á eftir, úr grein éftir Einar
Hjörleifsson í „Norðurlandi":
*•
■íf ■5Í-
„Ungir menn gcta verið andlegir karlfauskar, fullir af siná-
stnuglegri hagsinuna græðgi, vindþurkaðir af hrokabelgingi og
þar fram eftir götunuin. Og gráhærð gamalmenni geta veriö
æskuinenn í andlegum skilningi, fullir af þrá eftir sannleik og
réttlæti og fullir af lotningu fyrir sannleiks- og freísís-baráttu,
hvar sem hún er háð.
Mennirnir sjá ekki út úr augunum fyrir öllu, sem þeim er
ætlað að hafa hliðsjón á.—Þeim er ætlað aö varast þaöaðspilla
á nokkurn hátt fyrir sér eða afkoinendum sínum efnalega. Þeiin
er ætlað aö gæta þess vandlega að engir missi traust á þeim—
ekki heldur vitleysingjarnir. Þeim er ætlað að taka ekki að sér
nokkurn sannleika, sem á einhvern hátt getur spilt fyrir þeim
fiokki, sem þeim tilheyrir. Þeim er ætlað að segja engan sann-
leika, se.n geturorðið hleypidómafullum inönnum til ásteyting^
ar.—Þessari runu mætti h'alda áfram, eg veit ekki hvað lengi.
Alt af er verið að hlaða utan um mennina haugum af því, sein
þeir eiga að taka til greina. Alt eiga þeir að taka til greina—
nema sannleikann, það, sem þeir sjálfir telja sannleika.
Þeir æskumenn, sem eg á við og mér stendur ekki á sama
um, finnaog sjá að þetta er andstygð. Og ekki eingöngu and-
stygð, heldur líka aðalháskinn. Með þessum haugum er veriö
að teppa uppgönguaugun í lífslindum þjóðfélagsins. Með þeim
er verið að gera það ljós, sem í mönnunum er, að myrkri, eins
og mestur spekingur inannheímsins hefir að orði kveðið—sá,
sem var krossfestur fyrir að vera ófáanlegur til þess að taka
nokkurn skapaðan hlut til greina annan en sannleikann."
Ritstjóri síra Rftírnvuldur Pétursson, Winnipeg.
Prentari: Gísli Jónsson, Winnipog Man.