Iðunn - 01.01.1887, Page 76
70
Lúður8veinninn.
f>ar eð vatnsbyrgðirnar eru á, förum, en líkur til
þess, að umsátinni ljetti ekki í bráð, þá skal
vatnsskamturinn á dag færður niður í hálfan pott.
í dag skal tekin gröf í múrhvelfingunni handa
Kovalevsky sveitarforingja, sem fjell 6. þ. m. ;
líkami hans skal hulinn moldu.
I kveld skal velja vir liðinu flokk af Rússum og
fáeina Kósakka til þess að grafa opin göng niður
að læknum ; skulu þeir, er gegna þessu starfi, hafa
með sjer trjefötur eingöngu, til þess að þeir geri
sem minnstan hávaða.
7. dagskipun, 10. júní. — f>eir, sem vinna áttu
í gærkveldi, höfðu of hátt um sig, svo að þeir
vöktu eptirtekt óvinanna og komust ekki úr virkinu
fyrir skotum þeirra.
pur eð allt vatn er þrotið í sjúkrahúsinu, skulu
særðir menn og sjúkir lifa hjeðan af við sama kost
og aðrir.
Frá því, er þessi dagur er liðinn, fær enginn
meira en hálfpund af hveitibrauði á dag.
10. dagskipun, 14. júní. — Upp frá þessum degi
fær enginn meira en fjórðung punds af hveitibrauði
á dag.
f>ar eð útrásin í gær hlaut góðar lyktir, þá skal
særðum mönnum og sjúkum á spítalanum gefið
vatn í súpu handa sjer.
12. dagskipun, 17. júní. — Til sparnaðar á hveiti-
brauðinu skulu Ö0 manns, í stað 25, fara eptir
vatni; skulu sumir af þeim leita í rústunum að
matvælum; má vera, að eitthvað sje þar eptir
'enn.
13. dagskipun, 18. júní. — Patzevitch foringi er