Menntskælingur - 01.04.1949, Side 4
4
MENNTSKÆLINGUH
göfgi og verðleika mannsins, trúna á
jafnrétti manna og kvenna og þjóða,
stórra og smárra-------—
— að efla þjóðfélagslegar fram-
farir og bæta lífsskilyrði með víð-
tækara frelsi, og til þess að ná þessu
takmarki, að iðka umburðarlyndi og
lifa saman í friði sem góðir ná-
grannar ,og að sameina krafta okkar
til þess að stuðla að alþjóðarfriði og
öryggi- — — —
Við verðum að vona, að Hinar sam-
einuðu þjóðir reynist nægilega öflugar
til þess að framkvæma giftusamlega hið
mikla hlutverk sitt. En von er, því mið-
ur, ekki sama og öryggi, og hinar frið-
elskandi þjóðir eru þess ekki megnugar
að umbera einu stórveldi að gera að
engu þær glæstu vonir, er tengdar voru
við Sameinuðu þjóðirnar í fyrstu, svo
að það er þegar orðið álitamál, hvort
skipulag þeirra þarf ekki rækilegrar at-
hugunar við.
Samt sem áður verðum við að vona
allt hið bezta, og allt mun án efa vel
fara ef við festum okkur í huga eftir-
farandi orð, sem Franklin D. Roose-
welt reit skömmu fyrir andlát sitt, og
breytum af beztu getu eftir þeim:
„í dag stöndum við andspænis þeirri
mikilvægu staðreynd, að ef menningin
á ekki að líða undir lok, verðum við að
þroska með okkur samstarf og sam-
vinnuhæfileikann, er miðar að því, að
allar þjóðir, líkar sem ólíkar geti í hin-
um eina og sama heimi unnið saman og
starfað saman í friði.“
Ef okkur tekst þetta mun hugsjónin
OFURMENNSÐ
Heill þeim guma,
er getur hrufið
mál öll til mergjar
og aldregi vafi
né villa fœr
hrakið á hálar brautir.
Vizlcu mengi
og megin þrotlaust
í vöggugjöf hlotið liefir.
Firar óvísir
fá ei att
kappi við karlmenni slík.
Fávísra hnútum
og fjanda rógi
hrundið fœr með hlátri,
því skaða engan
né skömm fær slíkt
svo mœtum manni valdið.
Megi svo þroska
og manndóm öðlast
að eigi geti annan betri.
Verði liann æ —
verum fallgjörnum
styrkur til starfs og dáða.
J Ö K U L L.
verða að veruleika — heimurinn, sem
við kjósum, sameinaður, friðsamlegur
og lýðræðislegur heimur, nýr heimur,
er við getum án ótta látið af hendi við
eftirkomendur okkar, og það mun okk-
ur takast með Guðs hjálp.
(Þýtt til birtingar.)