Menntskælingur - 01.04.1949, Blaðsíða 10

Menntskælingur - 01.04.1949, Blaðsíða 10
1Q MENNTSKÆLINGUR i.m. HJOEL: ... «i nm.— Hugleiðingar un riám og kennslu Nú þegar hin nýja skólalöggjöf hefir verið samþykkt á Alþingi mætti ætla, að fyrir öllum okkar kennslu- og skóla- málum væri vel séð í framtíðinni. Svo mundi einnig vera ef menntunin ykist í réttu hlutfalli við milljónirnar, sem í ráði er að verja í viðbót til skólamála. En þrátt fyrir lengingu skólaskyldunnar og sí aukinnar aðsóknar að • framhalds- skólunum virðist framförin og árangur kennslunnar ekki vera svo sem skyldi. Meirihluti nemenda virðist þjást af megnu sinnuleysi og námsleiða, og að- eins hugsa um það á hvern hátt sé hægt að ná prófum með sem minnstum lestri og fyrirhöfn. Einhver ástæða hlýtur að liggja að haki þessum hugsunarhætti. Kennarar, jafnt sem aðrir, munu við- urkenna að meirihluti nemenda hagi sér aðeins eftir því boðorði að lesa sem minnst án þess þó að falla. Áhuga á námsgreinunum virðist tæpast til að dreifa hjá öllum fjöldanum, heldur er litið á þær sem leiðinlegt skyldustarf, er hrista beri fram úr erminni á sem skemmstum tíma, og með sem minnstri fyrirhöfn. Þ$ið mun vera einsdæmi að nemendur framhaldsskólanna leiti sér aukins fróðleiks í greinum þeim, sem kenndar eru í skólanum, enda er kannske ekki mikil von til þess eins og nú er í pottinn búið. I þessum málurn liggur ekki öll sökin hjá nemendunum sjálfum, heldur eru það miklu fremur forystumenn kennslu- og skóla-mála, er hér hafa staðnæmst á miðri léið og ein- blína nú á steinrunnið kennsluskipulag, jafngamalt fyrstu skólunum hér á landi. Það má raunverulega furðu sæta að samfara hinum risavöxnu og ævintýra- legu tæknilegu framförum hér á landi skuli ekki hafa runnið vakninga- og endurbóta-skeið í kennslu og menning- armálum. Fátt sýnir ljóslegar hve óra- langt andlega menningin stendur nú að baki hinni verklegu menningu, og eng- inn skyldi verða til að auka það ójafn- vægi. Flestir nemendur munu viðurkenna, þó ekki fúslega, að það sem sagt er hér að framan er ekki algjörlega tilefnis- laust og að námið sé elcki stundað af neinu ofurkappi, né þeim tíma er til lesturs fer væri ekki skemmtilegar var- ið á einhvern annan hátt. Þessi hugsun- arháttur, þótt skiljanlegur sé eins og nú standa sakir, er engan veginn heppileg undirstaða þess að skólarnir nái til- gangi sínum og í því að ala upp sem bezta og menntaðasta æsku. Það kennslukerfi, sem við eigum við að búa og er jafngamalt stofnun almennra skóla, er oft nefnt fjöldakennsla (mass education), er í því fólgið að fjölda unglinga, um og yfir 30 talsins, oftast mjög ólíkuin að gáfnafari, sumir skarp-

x

Menntskælingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntskælingur
https://timarit.is/publication/453

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.