Framtíðin - 01.12.1909, Side 24

Framtíðin - 01.12.1909, Side 24
150 F B A M T 1 Ð T N. það margir, sem blástirnif) ininnir á inisk- unarfaðm föðursins ? Sporléttur héri hoppaði þangaS sem Jens lá i snjónum og sperti upp eyrun og liorfði forviða á þenna gest, sem hafði dirfst að vanhelga musteri hans. Á svipstundu voru þau komin, skógar- vörðurinn og dóttir hans. Og með nokkr- ran erfiðismunum komu þau sjúklingnum heim í húsið og upp í rúm. En þar virt- ist sú hjálp, sem þau gátu veitt hinum ó- kunna manni, á enda. Margir drykkjumenn fá hið ofboðslega ölæði, sem kallast delirium tremens, rétt áður en vínið gjörir alveg út a'f við þá. t’egar líkamskraftarnir eru að þrotum komnir, og skilningarvitin ncita að starfa, er sem hin fallna sál fái skygnst út í ógnir og skelfingar þær, sem hún má búast við að mæta í eilífðinni. í þessu ástandi var Jens. Hann byltist og hentíst um rúmið öskrandi og veinandi. Iiann kvartaði um höggorma, sem vöfðu sig kaldir og blautir tim líkama haiis. Hann sá ljót og hræðileg skorkvikindi skríða alt í kring um sig. Og stundum ginu við honum hræðilegir villi- dýrakjaftar. Kaldur svitinn braust út á honum og andlitið tapaði allri mannsmynd. Og Hans varð að binda hann niður með reipum, svo hann hefðist vfð í rúminu. Svipur skógarvarðarins lýsti bæði undr- un og vandræðum. Hann var búinn að þekkja bróður sinn og minkuðu ekki vand- ræðin við það. Hann gekk fyrst um gólf, en settist svo út í horn, eins langt frá rúminu eins og harrn gat. Gréta liorfði með tárin í augunum á hinn örvita aum- ingja. og vissi ekki hvað hún áttti til bragðs að taka. Hún reyndi að tala við hann, en sýnilega skildi hann ekki eitt ein- asta orð. Einu sinni leit hann á hana og nefndi nafn hennar, og þá hrökk hún við, því hún var viss um að hún hafði aidrei séð hann fyr, en hana grunaði ekki, að það var móðir hennar, sem honum fanst hann sjá við rúmið. Eftir nokkrar árangurslausar tilratinir að tala við sjúklinginn, og þar eð óhugs- andi var að reyna að sofna. tók Gréta fiðl tma sína og lék nokktir einföld lög, sem hún hafði verið að æfa áður en hún kom heim. Það fór að koma kyrð á sjúkling- inn og óráðið minkaði. Hann var jafnveí fariim að fylgja meö augunum hönd Grétu sem hélt boganum. Og þegar hún varð þess vör að hljóðfæraslátturinn hafði þessi áhrif á hann, varð hún svo glöð, að hún gleymdi alveg laginu og spilaði eitthvað frá sínu eigin brjósti. Nú þurfti hún að svæfa hann. Sælir og þíðir töfratónar vöknuðu við strengina og liðu inn í hina hreldu sál og veittu henm trið. Gréta vissi varla af sér lengur. Henni fanst sem himneskar verur hvisluöu að sér indælli vögguljóðum en hún hafði nokkurn tírna áður heyrt. Og faðir henna- sat agndofa og starði á hana, eins og hún væri dratint- sjón, sem hverfa mundi á burt ef hann hreyfði sig. Það var líka sjón að sjá hana! Þangbrúnt hárið hafði losast úr fléttunum og liuldi axlirnar. Höftiðið laut að fiðlunni, augun vóru hálflukt og einhver himnesk ró hvíldi yfir liinu fagra andliti hennar. Eins og drifhvítur álftar- háls leið armur hennar til og frá með bogann. Alt af varð lagið þýðara, ljúfara og sætara, þar til tónarnir virtust koma langt að úr öðrum og betra heirni, og áður en áheyrendtirna varði, var rödd Grétu komin inn í lagfð -— svo blíð og hrein, og orðin féllu inn í sálu manns eins og lognmjöll á sléttan sæ. “Sjá, liimins opnast hlið”— Var það engill í fjarska sent vildi benda manni á lilið himinsins? Svo fanst Hans; en svefninn var að flytja sál sjúklingsins út á reginhaf gleymsktinnar. Morguninn eftir var komið eftir Jens. Hestarnir höfðu staðið skjálfandi við hest- liúsið um morguninn, og var strax farið á stað að leita. Jens, sem var mjög eftir sig, var vafinn innan í feldi og borinn út í sleðann. Hann kvaddi skógarvörðinn með handabandi, kvaðst hafa komið til að ráð- stafa skógvarðarembættinu, og sagðist mundu bráðlega senda honum skeyti því viðvíkjandi. En þcgar Gréta rétti honum bendina, dró hann hana að sér og hvíslaði einhverju að henni. Hún hikaði ögn, laut

x

Framtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framtíðin
https://timarit.is/publication/460

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.