Framtíðin - 01.12.1909, Side 32
158
F R A M T t Ð I N.
Söngsamkoma
að sumri.
Síöastliöiö sumar gat ekki af því
orðiö, fyrir atriði, sem stjómar-
nefndirj gat ekki við ráðið, að Hin
sam. íslenzku lútersku söngfélög
héldu samkomu. En nú er svo ráð
fyrir gert, að söngsamkoman verði
ha'.din á sumri komancla i Winni-
peg, í sambandi v.ö kirkjuþing.
.Ettu nú safnaða-söngfélögin að
taka höndum saman um það, að
van.'.a sem bezt til þeirrar sam-
koimi', og taka nú sem fyrst til að
;efa þá söngva, sem valdir hafa
ver ð. Notað verður sönghefti
það, sem prentað var í fyrra vetur.
Menn geta pantað það hjá hr. J. S.
Björnson, Mountain, N.D.,; borg-
unin, 25 cents fyrir eintakið, á að
fylgja pöntun. Auk þess verða
sungnir nokkrir söngvar aðrir,
sem ekki eru í heftinu, og mun
söngstjórinn, séra H. B.Thorgrím-
sen gefa bendingar um það áður
en langt liður.
Á þær tvær söngsamkomur,
sem þegar hafa haldnar verið,
hafa söngfróð'r menn lokið miklu
lofsorði, og bent á þetta fyrirtæki
hinum kirkjudeildunum hérlendu
sem fyrirmynd. Þetta ætti að vera
oss hvöt til þess, að láta nú áfram-
haldið vera byrjuninni samboðið.
Það er enginn efi á þvi, að þessar
söngsamkomur geta orðið til mik-
illar blessunar og ánægju fyrir
unga fólkið, ef vel er á haldið, og
yfir höfuð að tala orðið til þess að
glæða hjá oss áhuga fyrir sönglist-
inni. Miklir sönghæfilei'kar eru
hjá oss óæfðir og ónotaðir,— eins
og ljós undir mælíkéri. Látum oss
veita með þeim ný'jum 'straumum
feguirðar og heilbrigðrar glaðværð
ar og ljóss inu í félagslif vort. Það
er mikið á boðstólum af óhollum
sken.tunum, seui tjóni hafa valdið
og óláni meira en orð fá lýst. Með
cngu mót. veröur þeim betur út-
rýmt en því, að bjóða aðrar góðar
og hollar i staðinn. En góð skemt-
1111 og göfgandi er söngurinn þeim
er hann temja sér. Eldra fólkið
ætti því að hafa áhuga .á þessp
máli, og hvetja unga fólkið til þess
að sinna því og leggja sem mesta
rækt við það.
Söngsamkoman fyrirhugaða á
ekki að verða gróðafyrirtæki. Öll-
um tekjum sem afgangs verða
nauðsynlegum kostnaði, verður
varið til þess að endurgjalda söng-
flokkrun ferðakostnað. Verði sam-
koman vel sótt, ætti sá kostnaður
því ekki að verða söngflokkum til-
finnanlegur og ef til vill litill sem
enginn.
Þau söngfélög, sem taka vilja
þátt i þessari söngsamkomu, geri
svo vel að láta undirritaðan vita
um það sem fyrst, ómögulega
seinna en fyrir nýár, og munu
þe’rn þá verða látnar í té nauðsyn
legar bendingar þessu máli við-
víkjandi.
Tökum nú höndium saman um
það, að halda við þeim heiðri, sem
vér höfum þegar hlotið. Og lát-
um oss fara fram, svo að orðstír-
inn geti farið vaxandi. Látum
sjást að Vestur-íslendingar geta
staðið öðrum jafnfætis hér í landi
í fögrum listum, engu síður en
bókmentum og verklegum fram-
kvæmdum.
Baldur, Man., 19. Nóv. 1909.
Fr. Hallgrimsson. .
-------o------■-