Fríkirkjan - 01.12.1899, Qupperneq 3

Fríkirkjan - 01.12.1899, Qupperneq 3
179 eptir Vigurprestinn og flest annað í þeii i i grein. En Fríkirkjan svaraði greininni og hrakti hana. í sama stað henti V. lj. nokkur miður grunfluð ummæli úr grein í Kbl. eptir sira Mattías Jochúmsson og kanóniseraði þau með orðunum: „allt þetta álítum vér hverju orði sannara.“ A þessa siðast nefndu grein hefur aldrei verið minnst annað en þetta i V. lj.; sem gætti þess ekki, að Kbl. hafði hrakið með athugasemd eitt atriðið, sem átti að vera „hverju orði sannara1', og að greinin í heild sinni var miklu fi'emur með málsstað fríkirkjunnar, þó hinn heiðraði höfundur teldi ýms tormerki á fríkirkju i framkvæmdinni hér á landi. Sira Mattías er semsé fríkirkjuvinur i raun og veru, enda talar hann í grein þessari mjög loflega um fríkirkjur annar- staðar, og kannast við að þær hafl oiðið til inikillar. eflingar trúarlífi þjóðanna. Um skotsku fríkirkuna segir hann: „Það má fríkirkjan eiga, að fjör og dugnaður hennar og um leið allru kirkna þar í landi þykir störum hafa vaxið síðan hún hófst.“ Um hinar frægu, fornu kirkjudeildir á Englándi segir hann: „En eitt og sama grundvallarprinsip eða frumregla vakir fyrir þeim öllum, og skín í gegnum þeirra fyrirkomulags vef, eins og uppistaða, það er, að guðsorð og vilji kirknanna sjálfra ráði lögum og lofum, en hvorki ríkið né biskupar.“ Er ekki þetta rétt meg- inregla? Um safnaðarmenn Congregationalista eða Independ- enta segir hann: ,,1’eir eru lengst komnir í kirkjulegu lýðveldi og frjálslyndi. Independentar lofa hverjum einasta söfnuði að eiga sig og skapa sér sjálfum stjórn, játningareglur, siði og tíðahald (ritus og ritúai). Víðasthvar eru þó allmargir söfnuðir i sambandi.“ Mundi ekki þetta fyrirkomulag veia líkast því, sem gjörðist á dögum postulanna. „Ails eru kirkjudeildir á Englandi hátt á 3. hundrað að tölu; og vilji menn vita sögur þeirra, upptök og fyrirkomulag, er ekki einhlítt að lesa kirkjusögur; menn verða að senda valda menn, frjálslynda og velfæra, helzt unga og stórhuga (því þá það?) og sizt innri missiónarmenn — senda þá gagn- gjört til Englands og láta þá fræðast af sjálfum viðkomendum; gæti sá fi'óðleikur, sem par með fengist, orðið oss mikill fjár- sjóður.“ Á það að verða oss fjársjóður til eflingar ríkiskirkju-

x

Fríkirkjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.