Fríkirkjan - 01.12.1899, Blaðsíða 5

Fríkirkjan - 01.12.1899, Blaðsíða 5
181 íslenzka kirkjan getnr hvorki sem rikiskirkja, né sem frí- kirkja, gjört presta sína að auðugum prelátum, eins og gjörist sumstaðar í öðrurn löndum, enda er það ekki eptirsóknarvert; en ríkiskirkjan hefir gjört og gjörir enn margan prestinn að ágjörnum og yfirgangssömum mammons þjónum, er hafa setið í embættum sínum sjálfum sér til skammar og kirkju drott- ins til niðurdreps. Þessu verður ekki neitað, og þó að segja megi, að fríkirkjuprestar geti líka gjörst ágjarnir og yfirgangs- samir, þá er því það svar að gefa, að bæði er það i sjálfu sér ólíklegra, með því þeir mundu ekki ganga í prestskapinn af gróðalöngun og eigi heldur hafa neitt jarðagóss yfir að ráða; og svo er sá kostur við fríkirkju, að liver söfnuður get- ur þegar er hann vill losnað við prest sinn, svo að það mundi varasamara fyrir frikirkjuprest að sýna fégirni i framkomu sinni eða óreglu í lifnaði sínum, heldur en fyrir ríkisprestana, sem ávallt mun reynast erfiðara að víkja úr sessi, og sem dærnin sanna að geta árum saman og til æfiloka setið í em- bættum sínum í úlfúð og trássi við sóknarfólk sitt. Ein af undarlegustu setningunum hjá M. ei' þessi: „Að vísu kunna þeir að hafa rétt fyrir sér, sem segja, að kreddu- bundnar kirkjur verði smámsaman ómögulegar, en hvað þá ef rikin hættu að styðja þær með valdi sínu, lögum, stéttum, stofnunum, auði og áliti'! !“ fessi setning er meistarastykki af Mattíasarlegri logík. Fyrst gefur hann þeim rétt, er segja að „kreddubundnar kirkjur verði bráðum óinögnlegar“, og er auðvitað, þó hann að eins segi að þeir „kunni að hafa rétt fyrir sér“, að hann er þeim samdóma og vill eins og þeir að þær verði ómögulegar; en svo í sömu andránni setur hann sig sem kredduprest og sér eptir því, að ríkisvaldið skuli ekki styðja hinar kreddubundnu kirkjur, svo þeér geti enzt sem lengst. Hér kemur og einkar glögglega fram, hvað það er, sem hann álítur að eigi að halda ríkiskirkjunni saman, nfl. „vald ríkisins, lög, stéttir, stofnanir, auður og álit“. Þetta allt ætlast hann, og yfir höfuð rikiskirkjuvinirnir, til að styðji kirkjuna; þeir þora ekki annað en hafa hana girta þessum megingjörðum. En vér fríkirkjumenn segjum : burt með allar slíkar megingjarðir, því að ef kirkja Jesú Krists, sem eins vill

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.