Fríkirkjan - 01.12.1899, Side 11

Fríkirkjan - 01.12.1899, Side 11
186 fyrir prestsþjónustu og reisa kirkju handa sér; en hitt má í sannleika kallast næsta undarlegt að málsmetandi menn bæjar- ins skulu finna sér skylt að rísa gegn fríkirkjuhreyfingunni ekki einungis á þann hátt að reyna að hindra útbreiðslú hennar, heldur og, það sem verra er, reyna að fá bæjarfélaga sína, sem komnir eru í lögbundinn fríkirkjusöfnuð, tii að ganga frá orðum sínum og undirskriptum, standa sem svikarar gegn fríkirkjusöfnuðinum og sjálfir minni menn. En þjóðkirkjuandinn, þegar hann er vaknaður, hann spyr ekki um slika smámuni eins og að halda orð sín. Helzta. meðai, sem beitt er til að reyna að hepta frikirkju- hreifinguna, er eðiilega kost.naðargrýlan. Það er reynt að telja mönnum trú um, að safnaðarframkvæmdin og kirkju- byggingin hafi óbærilegan kostnað í för með sér. Sæmra væri nú hinum mörgu auðkýfingum hér í bænum að rétta fríkirkjusöfnuðinum hjálparhönd, og sæmra hverjum góðum dreng að hvetja. þá, sem í söfnuðinum ei'u til trúar og drengilegrar festu. Sú trú þarf að komast inn hjá allri al- þýðu manna, að vór sjálfir með öllu því, sem vér köllum eign vora, hvort sem það er smátt eða stórt, erum drottins eigll i íyllsta skilningi, og að hann er máttugur til að efla atvinnu vora og blessa vort daglega brauð, að minnsta kosti ekki síður fyrir það, þó vór viljum eitthvað á oss leggja fyrir hans málefni. Pessa trú er þjóðkirkjuandinn búinn að reka úr landi að miklu leyti, með öllum sínum lögtæku skyldu- kvöðum i guðs jíkis þaríir. Eins og opt viJl verða, þegar undirróður er hafinn gegn góðu málefni, hefur ódrengilegum vopnurn einnig verið beitt, svo sem pej'sónuiegum óhróði'i um hirm kjörna prest frí- kirkjusafnaðaiins. „Tilgangurinn helgar moðálið11 segir þjóð- kii'kjuandinn. l^i'isiur ironnni fvrir '^íiutusi er myndin, sern Frikirkjan flytur að þessu sinni. Konunguj' sannleikans stendui' frammi fyrir ej'ihdisreka hins veraldlega valds (ííkisins), kærður af handhöfum hins andiega vaids fkirkj- unni) og umkringdur af skiiinum. sem þeir liafa æst gegn honum. Þessi heimsfræga mynd er hin bezta prédikun, sem unnt er að hugsa sér gegn ríkiskii'kjuprinsípinu.

x

Fríkirkjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.