Fríkirkjan - 01.03.1901, Side 9

Fríkirkjan - 01.03.1901, Side 9
41 vel trú ið því, Arthúr, að ef á þyríti að halda, þá legði hann líf sitt i sölumar fyrir þig.“ „Eg veit það, eg er viss um það; en til hvers er að vera að tala um það? eg get ekki að þessu gjört. Mér þykir vissu- lega mikið fyrir því, að þú skulir taka þetta svona nærri þér, Emilía,‘; sagði Shelby, „en og segi þér satt, að eg get ekki að því gjört. Eg ætlaði mér ekki eð segja þér það, Emilía; en í stuttu máli, það er ékki annar kostur, en annað hvort að selja þessa tvo eða selja allt; annað hvort verða þeir að fara eða allt. Haley hefur þunga veðskuldakröfu gegn mér, sem hann ætlaði að taka allt upp í, ef eg borgaði ekki strax. Eg var á hans valdi, og vart að gjöra það. Frú Shelby stóð sem þrumulostin. Loksins gekk hún til herbergis síns, fól andlitið í höndum sér og andvarpaði þungan. „Þetta er bölvun guðs yfir þrælahaldinu! Beiska, beiska, meinbölvaða ástand. Bölvun fyrir húsbóndann, og bölvun fyrir þrælinn! Eg var heimskingi að hugsa, að eg gæti leitt nokkuð gott út ur slíkri dauðans villu. Það er synd að halda þræl undir slíkum lögum sem vorum. Eg hef ávallt fundið það. En eg hugsaði að eg gæti gjört gott úr því; eg lnigsaði að eg með góðsemi, umhyggju og uppfræðslu, gæti gjört æfi þeirra betri enn frelsið. Hvílík fásinna!" IV. Móðirin. Hjónin grunaði lítið, að það væri manneskja, sem hlýddi á þessa samræðu þeirra. Elísa, sem var bæði óttasiegin og kvíðafulk hafði falið sig í stórum skáp, er opnaðist bæði inn í berbei'gi frúarinnar og út i ganginn. Þegar þau slitu talinu, kom Elísa fram úr fylgsni sínu, og gekk hljóðlega burt. Hún var föl og skjálfandi, með harðlega andlitsdrætti og samanklemmdar varir, og með öllu ólík hinni viðkvæmu og veigalitlu manneskju, sem hún hingað til hafði verið. Hún gekk gætilega fram eptir ganginum, staðnæmdist eitt augna- blik fyrir framan dyr húsmóður sinnar, og fórnaði upp hönd- um í þegjandi hjálparbæn til himinsins, og svo hvarf bún inn i herbergi sitt. Það var lítið en snoturt herbergi, á sama gólfi og her-

x

Fríkirkjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.