Fríkirkjan - 01.03.1901, Blaðsíða 10
42
beigi húsmóður hennar. Þarna var skemmtilegi sólskins-
sæli glugginn, þar sem hún svo opt hafði setið syngjandi við
sauma sína; þarna var ofurlítill skápur, með bókunum henn-
ar, og meðfram þeim var raðað smámunum ýmsum, er hún
hafði fengið að jólagjöfum. Hér var í stuttu máli heimilið
hennar, og yflr höfuð að tala hafði það verið gott heimili.
En þarna á rúminu lá drengurinn hennar sofandi; hinir
löngu lokkar hans féllu mjúklega niður um sakleysislega and-
litið; rósrauðu varirnar voru opnar, og feita höndin hans lá
ofan á ábreiðunni; bros var á andliti hans eins og sólar-
bjarmi.
„Yesiingurinn minn! veslings drengurinn!“ sagði Elísa,
„það er búið að selja þig, en móðir þín ætlar að bjarga þér.“
— Pað draup ekki eitt einasta tár á koddann. í slíkum þraut-
um hefur hjartað engin tár að láta í té, það drýpur að eins
blóði og blæðir sjálft burt i kyrþey. Hún tók pappirsblað og
ritblý og skrifaði í flýti: — „Ó, frú, kæra frú! Hugsið mig
eigi vanþakkláta — áfellið mig eigi né hugsið illt um mig á
nokkurn hátt. Eg heyrði alla samræðu ykkar hjónanna í
kveld. Eg ætla að reyna til að bjarga drengnum mínum, —
það munuð þér eigi lá mér, Guð blessi yður og launi yður
alla góðsemi!"
Hún braut blaðið í flýti og skrifaðj utan á það. Svo tók
hún dálítið af fötum handa drengnum sínum upp úr kommóð-
unni, batt þau í böggul og reyrði hann með handklæði fast
að mitti sér; og svo viðkvæmt er móðurminnið, að jafnvel
í skelfingu þessarar stundar gleymdi hún ekki að láta í litla
böggulinn eitt eða tvö af uppáhalds l9ikföngum hans; en uppi
við hafði hún fagurmálaðan páfugl, til að skemmta honum
með, þegar hún þyrfti að vekja hann.
Það var dálítil fyrirhöfn að vekja drenginn, en eptir nokkra
tilraun settist hann upp og fór að leika sér að fuglinum sínum,
meðan móðir hans var að láta á sig sjalið og hattinn. —
„Hvert ætlarðu mamma? sagði hann, þegar hún kom að rúm-
inu með litlu yflrhöfnina hans og húfuna. — Móðir lians laut
niður að honum, og leit svo alvörugefin í augu hans, að hann
réð þegar í, að eitthvað óvenjulegt væri um að vera.
_______^_________ (Framh.)