Fríkirkjan - 01.03.1901, Blaðsíða 10

Fríkirkjan - 01.03.1901, Blaðsíða 10
42 beigi húsmóður hennar. Þarna var skemmtilegi sólskins- sæli glugginn, þar sem hún svo opt hafði setið syngjandi við sauma sína; þarna var ofurlítill skápur, með bókunum henn- ar, og meðfram þeim var raðað smámunum ýmsum, er hún hafði fengið að jólagjöfum. Hér var í stuttu máli heimilið hennar, og yflr höfuð að tala hafði það verið gott heimili. En þarna á rúminu lá drengurinn hennar sofandi; hinir löngu lokkar hans féllu mjúklega niður um sakleysislega and- litið; rósrauðu varirnar voru opnar, og feita höndin hans lá ofan á ábreiðunni; bros var á andliti hans eins og sólar- bjarmi. „Yesiingurinn minn! veslings drengurinn!“ sagði Elísa, „það er búið að selja þig, en móðir þín ætlar að bjarga þér.“ — Pað draup ekki eitt einasta tár á koddann. í slíkum þraut- um hefur hjartað engin tár að láta í té, það drýpur að eins blóði og blæðir sjálft burt i kyrþey. Hún tók pappirsblað og ritblý og skrifaði í flýti: — „Ó, frú, kæra frú! Hugsið mig eigi vanþakkláta — áfellið mig eigi né hugsið illt um mig á nokkurn hátt. Eg heyrði alla samræðu ykkar hjónanna í kveld. Eg ætla að reyna til að bjarga drengnum mínum, — það munuð þér eigi lá mér, Guð blessi yður og launi yður alla góðsemi!" Hún braut blaðið í flýti og skrifaðj utan á það. Svo tók hún dálítið af fötum handa drengnum sínum upp úr kommóð- unni, batt þau í böggul og reyrði hann með handklæði fast að mitti sér; og svo viðkvæmt er móðurminnið, að jafnvel í skelfingu þessarar stundar gleymdi hún ekki að láta í litla böggulinn eitt eða tvö af uppáhalds l9ikföngum hans; en uppi við hafði hún fagurmálaðan páfugl, til að skemmta honum með, þegar hún þyrfti að vekja hann. Það var dálítil fyrirhöfn að vekja drenginn, en eptir nokkra tilraun settist hann upp og fór að leika sér að fuglinum sínum, meðan móðir hans var að láta á sig sjalið og hattinn. — „Hvert ætlarðu mamma? sagði hann, þegar hún kom að rúm- inu með litlu yflrhöfnina hans og húfuna. — Móðir lians laut niður að honum, og leit svo alvörugefin í augu hans, að hann réð þegar í, að eitthvað óvenjulegt væri um að vera. _______^_________ (Framh.)

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.