Fríkirkjan - 01.03.1901, Blaðsíða 11

Fríkirkjan - 01.03.1901, Blaðsíða 11
43 „Sameiningin“ um hina vísindalegu biblíurannsókn, í janúarblaði „Sameiningarinnai " 1901 hefst ritgjörð, senr hefur titilinn: „Biblíufræðin nýja.“ Það er síra Bjftrn B. Jóns- son, sem þar tekur til máls, sami maðurinn, er átti hinn rök- samlega fyrirlestur í 9. árgangi „Aldamóta" um „guðiegan inn- blástur heilagrar ritningar.“ Það eru ekki nema örfá upphafsorð, sem enn eru komin; en auðsætt er af þeim, að höfundurinn er einn af þessum „fá- fræðingum, sem ekki hafa getað „fylgzt með“. Oss er ekki kunnugt um aldur þessa höfundar; má vera að hann sé undir sama númeri, eins og séra Jón Bjarnason, sem V . . . . Ijósið kemst svo að orði um: „ — enda væri rangt að ætlast til slíks (o: að hann geti orðið samdóma hinum lærða dóeenti) af manni, sem kominn er á aldur síra Jóns og auðvitað hefir ekki átt kost á sem skyldi að fylgjast. með í þeim vísindagreinum guð- fræðinnar, sem um það mál hafa fjallað." „Miklir menn erum við, Hrólfur minn!“ Yegna þeirra, sem ekki sjá „Sameininguna“ viljum vér taka upp í blað vort nokkra kafla úr ritgjörð síra Bjarnar: „Prestaskólakennari séra Jón Helgason hefir á síðustu miss- irum í blaði sínu „Verði ljós! “ og á annan hátt gjört sér mik- ið far um að útbreiða meðal landa sinna þekking á því, sem kallað hefir verið „Hinar nýju vísindalegu biblíu-rannsóknir. “ Hefir hann viljað telja mönnum trú um, að úti i menntaða heiminum hvervetna sé „allir hinir trúuðustu og ágætustu vísindamenn“ fallnir fiá þeirri gömlu kenning, að öll ritningin sé innblásin af guði og sé óskeikult guðs orð. Hann hefir leitazt við að sýna fram á, að mikið sé um „þversagnir" og „mótsagnir" í biblíunni og að þessi trúarbók kristinna manna sé mjög ófullkomin og að ýmsu leyti óáreiðanleg.......... Hér fyrir vestan hefir framkoma séra Jóns Helgasonar í þessu máli orðið til að hneyksla fjölda fólks, og hefir mörgum verið það stórt sorgarefni, að einmitt sá maðurinn, sem vinir kristindómsins væntu svo mikils góðs af, skyldi snúast þannig á móti einum aðal-lærdómi „orþodoxu" kirkjunnar. Og lak- ast af öllu er, að þessi háttvirti kennimaður hefir einatt verið mjög óvarkár með staðhæfingar sínar og sagt þau tíðindi af

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.