Kári - 17.08.1918, Side 8
8
KÁRI
mannanna, formaður Brunabótafjelags ís-
lands, Sveinn Björnsson eigi einungis hefur
verið svo bíræfinn að draga naín mitt fram
í skjölum málsins og í skjóli þess, að jeg
kæmist eigi á snoðir um það, af því að
mjer var eltki stefnt í málinu, brigslað
mjer um svik og fjárdrátt, heldur hefur
hann verið svo ósvífmn að bera hinar
sömu sakagiftir á Sparisjóð Árnessýslu,
þótt það sje alkunnugt að fyrir þeirri
stofnun ávalt hafa staðið og standa mestu
ágætis og sómamenn. Þó að dómstólar og
dómarar sjeu ljelegir hjer á landi, þá er þó
óliklegt að dómarar sjeu þeir fábjánar að
láta fúlmennsku illyrði um óstefnda menn
verka á úrslit mála, svo það getur ekki
verið gróðavænlegt- fyrirtæki fyrir mála-
færslumenn að selja sæmd sína því verði
eins og Sveinn hefur gert í þessu máli.
Það skal sagt yfirdómnum til hróss, að
i forsendum dóms hans er nafns míns alls
ekki geíið og því er fyrsta frásögn Morg-
unbl. frá 26. júní fölsk. Öðru máli er að
gegna með Boga Brynjólfsson, sem kvað
upp undirrjettardóminn. Hann hefur gleypt
úlflaldann með hárinu eins og vænta mátti
af honum og rubbað upp öllum svívirðing-
unum, sem Sveinn í málskjölunum hefur
ausið yfir mig og Sparisjóðinn í forsendum
dómsins.
Þess skal getið, að hús þau og mann-
virki, sem voru í kaupi Jóns Steingrims-
sonar, er hann keypti búið í Gaulverjabæ,
voru siðast liðið haust seld landsstjórninni
á 6000 kr. að því er eg best veit. Þar að
auki voru í kaupunum um 30 stórgripir,
eitthvað af sauðfje og allir búshlutir, hús-
gögn og innanstokksmunir, m. ö. o. all
lifandi og dautt, sem Jón Magnússon átti í
Gaulverjabæ, en alkunnugt er, að bú Jóns
Magnússonar var eitt af stærri búum sýsl-
unnar. Jeg ætla því að gefa ritstjóra Morg-
unbl. þann sama kost, sem hann gaf mjer,
að íhuga það með sjálfum sjer, hvort Jón
Steingrímsson hafi eigi í raun og veru gert
góð kaup og hvort honum, ritstjóranum
muni eigi sjálfum vera íyrir bestu að íhuga
/
lítilsháttar hvað hann birtir í blaði sínu og
hlaupa ekki eftir hverjum seppa, sem geltir
i eyra hans.
Erasmus Gíslason.
Frjettir.
Oddur Gíslason,
yfirrjettarmálaflutningsmaður, hefur nú
selt húseign sína A. V. Tuliníusi lijer í
bænum og að sögn ráðstafað öðrum eigum
sínum, og það hefur heyrst að hann ætli
að tlytja af landi burt, sumir segja til
Danmerkur, aðrir halda því fram að hann
fari til Vesturheims á meðan verið er að
leita að sakamálskæru, sem tapast hefur
úr sljórnarráðinu.
IG verður fyrst um sinn ad
hitta á Hótet ísland, (herbergi nr.
15), og bið jeg þá, sem kgnnu að
vilja hitta mig að máli, að snúa
sjer þangað.
Virðingarfglst
ERASMUS GÍSLASON.
Ábyrgðarmað ur:
Erasmus Gíslason.
Prentsmiðjan Gutenberg.