Liljan - 01.11.1926, Blaðsíða 12

Liljan - 01.11.1926, Blaðsíða 12
72 LILJAN tegundir. Jeg hafði um veturinn lesið bók, og- marglesið, er jeg hafði fengið lánaða á bókasafni. Hún hjet „Dan- marks Natur“. Jeg hef oft síðan rek- ist á eintök af þeirri bók, og í hvert sinn, er jeg tek hana mjer í hönd, finn jeg til einhvers velvilja eða samúðar, sem fyrir blindni tilfinninganna kemur fram gagnvart bókinni, þó það ætti að vera gagnvart höfundunum. En til samúðarinnar finn jeg af því að þessi bók, þó hún sje um náttúru Flatlands, varð til þess að opna augu mín fyrir náttúru okkar eigin lands, eða jafnvel allra landa, og hún vísaði mjer jafn- framt inn í undraheim raunveruleikans. Áður hafði jeg ekki sjeð annað en fugla í skóginum, bara fugla, en nú sá jeg ýmsar og ólíkar tegundir þeirra. Jeg sá líka beykitrje, sem voru að vaxa upp yfir eik — þarna var þá ein af síðustu orustum þessara trjáteg- unda. Beykið þolir vel skugga eikar- innar, en vex hraðar en hún og byrgir fyrir henni sólargeislana. En ungar eikur þola ekki skugga gamalla beyki- trjáa. Þess vegna hefur beykið útrýmt eikinni að mestu úr Danmörku. Það eru beykiskógar nú þar, sem áður voru eikarskógar. Og svona mætti lengi upp telja, hvað jeg sá, og hvað sá sjer í náttúrunni, sem ekki er henni ókunnugur. Sá, sem ekki sér annað en máfa á ísnum, hefur ekki sömu ánægju af því að horfa á þá og sá, sem sjer hinar 'einstöku teg- undir þeirra, eins og sá hefur ekki sömu ánægju af að koma út í skóg, sem ekki sjer annað en trje — og hinn, er sjer margbreytni tegundanna. m. Mörgum árum seinna, hóaði þessi kunningi minn í mig, einn sumardag, er hann mætti mjer í Lækjargötu í Reyk- javík. Hann var með ferðapoka á bakinu, og sagðist vera að koma úr gönguför. Var hann kátur yfir því ferðalagi, eins og allir, sem ferðast gangandi um ís- lenska víðáttu, fái þeir gott veður, en einnig án þess, ef um nokkra verulega för er að ræða. Sagðist hann hafa óskað, að það hefði verið maður með honum í förinni, sem hefði getað skýrt hvaða fuglar það voru, sem Ijetu til sín heyra hin ýmislegu hljóð, sem hann heyrði við og við svo yndislega rjúfa kyrð sumar- næturinnar, því þá hefði förin verið enn ánægjulegri. Og hann hafði rjett að mæla. Því þeim manni, sem gengur út um víða- vang, en þekkir ekki fuglana, og þekkir ekki fimmtíu til hundrað algengustu blómin, ekki síst, ef hann heldur ekki þekkir undirstöðuatriðin í því, hvernig yfirborð landsins er myndað, honum er líkt farið eins og villimanni, sem lok- aður er inni í bókasafni. Því rjett fyrir framan hann er fróðleikur og óþrjót- andi tilbreytni, sem hann kann ekki að meta, veit einu sinni ekki af — get- ur ekki notið. Jeg man hve hissa jeg varð, þegar jeg sá fyrst ísnúna klöpp. Jeg var að- komumaður þar, en það hittist nú svo á, að þetta var einmitt á þeim staðn- um, sem jeg hef enn fram að þessu stigið flest sporin — á fæðingarstað mínum, Eskifirði. Þarna í hlíðinni fögru, milli tveggja raða dunandi fossa, þar sem annars- vegar er hin blikandi röð Bliksárfoss- anna, sem sanna að nafn árinnar er einmitt svo, en ekki dregið af hest- nafni, þó þjóðsögn hermi — þama í hlíðinni, þar, sem fossar hinnar regn-

x

Liljan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Liljan
https://timarit.is/publication/484

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.