Liljan - 01.11.1926, Síða 14

Liljan - 01.11.1926, Síða 14
74 LILJAN þessa hærra sjávarmáls má sjá alstað- ar hjer í nágrenninu, og ótal sinnum hefur athugun þeirra veitt mjer óblandna ánægju, er jeg hef rekist á þau á útigöngum. í sögunum er sagt að landið hafi ver- ið skógi vaxið milli fjalls og fjöru. Hver trúir því? Jeg man að mjer þótti það ekki sennilegt, er jeg leit yfir gróður- lausu, grýttu hálsana, í nágrenni Reyk- javíkur. En er jeg rakst á lítinn græn- an blett, suðvestan í Öskjuhlíðinni, komst jeg á aðra skoðun. Yfirborð þessa blettar lá hærra en hlíðarinnar í kring, og það var auðvelt að sjá, að sama stórgrýtið, sem þakti hlíðina, var einnig þar sem græni bletturinn var — inni undir honum. Það var eins og þarna væri stór grasi gróinn moldar- bingur ofan á grjótinu. Hvernig gat á honum staðið ? Hvernig var þessi mold komin þarna? Svarið gat ekki verið annað en það, að þetta væru leyfar af moldarlagi, sem einu sinni hefði hulið alla hlíðina, og þá hefur hún vafalaust verið skógi þakin. En þegar forfeður vorir eyddu skógunum, bljes landið upp, það er: moldin fauk burt. Víða í nágrenni Reykjavíkur standa einstök börð eftir, sem eru leyfar af jarðvegs- lagi því, er huldi alla beru, grýttu ás- ana, sem nú eru, en þeir voru þá skógi vaxnir. . En hvað varð af moldinni, sem fauk? Sumt fauk á sjó út, sumt í lækina, sem báru það, sem þeir fengu, sömu leið. Mest af moldinni hefur þó borist ofan í mýrarnar milli ásanna og er þar enn- þá, eins og sjá má, þar, sem mýrar eru skurðaðar. Þegar mikil brögð hafa verið að uppblæstrinum, og vindurinn hefur rifið upp stór svæði í einu, hef- ur moldinni sumstaðar hlaðið saman í háa skafla. Með breyttri vindstöðu hefur svo aftur rifið úr þeim sköflum, en eftir orðið, samt sem áður, stórir moldarhaugar, er síðar grjeru upp. Slíka uppgróna moldarhauga, sem eru grónir moldarskaflar, frá því er ásam- ir mistu jarðveginn, má víða sjá, t. d. þegai' gengið er milli Elliðaánna og Fossvogs. En hversvegna bljes ekki jarðvegur- inn einnig, þar, sem börðin standa eft- ir? Sumstaðar hefur mjer virst það mundi hafa verið af því, að jarðvegur- inn var rakur, annars staðar, þó undar- legt sje, af því hvað hann var þur. Þar, sem enginn skógur var, heldur bara gras, bljes ekki upp, því grasrætumar hjeldu moldinni. Það er því jarðvegur rjóðranna, sem eftir er og að minsta kosti í einu litlu barði, sem eftir stend- ur, er jarðlagið svo þunt, að mjer þyk- ir sennilegt, að það hafi aldrei verið skógi vaxið, af þvi að það hafi ekki getað haldið í sjer nægum raka, til þess að næra trje, þó það væri nógu þykt til þess, að gras gæti vaxið þar. En viðvíkjandi blettinum, sem fyrst vakti athygli mína, er það að segja, að hann er í halla, og sökum hins óvenju frjóa gróðurs hans, þykir mjer senni- legt, að þarna hafi staðið fjárhús í skóginum á landnámstíð, en dálítill op- inn blettur verið fyrir framan það og neðan, þar sem jarðvegurinn ennþá er eftir. Það hefur skeð í mörgum löndum, þetta, að skóginum hefur verið eytt, og landið síðan blásið, en það er ekki skemtilegra fyrir því, það sem skeð hefur hjer hjá okkur, og það er síst að furða, þó skáldin okkar hafi oft orkt um skógana horfnu, eða dreymt vun nýja skóga. Margir hatast við loftkastalasmíðar, en með órjettu, því þó ekki sjeu þær

x

Liljan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Liljan
https://timarit.is/publication/484

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.