Liljan - 01.11.1926, Side 16
76
LILJAN
himininn var enn þá dimmrauður í
vestrinu. Fjöllin voru nú orðin dökk-
blá, og hverareykirnir voru orðnir að
bláleitri móðu. Við rísum hljóðlega á
fætur og bjuggumst til hvíldar. Það
var ekki langrar stundar verk. Við
fórum úr skátafötunum okkar, hengd-
um þau upp í tjaldið og fórum í hlýjar
ullarpeysur. Því næst vöfðum við okk-
ur í teppin, stungum malpokunum und-
ir höfuðið og lögðumst út af. Það var
samt ekki meiningin að sofna strax.
Nei, samkvæmt gömlum og góðum
skátasið varð ein okkar að segja sögu,
og það var ekki fyr en henni var lokið,
að við hugsuðum til svefns. Hann ljet
heldur ekki á sjer standa, andartaki
síðar vorum við allar sofnaðar.
Niðurí. næst. Heiða Sæm.
----o----
Úr heimi skáta.
Frá „Birkibeinum“. t fyrravetur
skrifaði jeg „Liljunni" stutta frásögn
um Skátafjelagið „Birkibeina“ á Eyr-
arbakka. Nú vil jeg bæta við höfuð-
dráttum úr sögu fjelagsins síðan. Hef-
ur fjelaginu vaxið mjög fiskur um
hrygg, bæði að efnum og atorku.
Nú er svo komið, að allir fjelags-
menn hafa einkennisbúninga og merki
þau, er þeir hafa rjett til að bera.
Lagði fjelagið til skyrtur, klúta og
merki, drengirnir sjálfir hitt. Gjafir
tvær, er fjelaginu bárust, gerðu því
kleifa þessa miklu búningsbót. Skátar
þeir úr 1. Væringjasveit, er hingað
komu austur um hvítasunnu í vor (Sjá
„Liijuna" 6.-7. bl. þ. á.) færðu fje-
laginu 100,00 kr. að gjöf frá Væringj-
um og Skátasveit K. F. U. K. Þá gaf
A. V. Tulinius fjelaginu 25,00 kr., eitt
sinn er hann kom í Þrastaskóg s. 1.
sumar. „Birkibeinar" þakka þessar
rausnargjafir. Ilafa þær orðið fjelaginu
til hinnar mestu viðreisnar.
Minna prófi luku flestallir skátarnir 5.
apríl s. 1., en þeir, sem þá voru eftir,
hafa lokið því í haust. Prófdómendur
voru Gísli Pjetursson læknir og Ingi-
mar Jóhannesson kennari. 24 sjerprófs-
merki hafa veríð tekin; 11 þeirra fyrir
„hjálp í viðlögum“. Nokkrir eru að
búa sig undir að taka merki.
,,Birkibeinar“ hafa óvenjuslæma að-
stöðu um útilegur, sakir þess, að dreng-
imir eru flestallir í sveit á sumrum.
Nokkrír skátar voru þó í Þrastaskógi
4 ágæta sólskinsdaga í júní og skemtu
sjer hið besta. Auk þess voru einstöku
„Birkibeinar“ stundum í skóginum um
helgar, í tjöldum foríngjans, sem er
umsj ónarmaður skógarin s.
Sex ára afmælis fjelagsins, 9. nóv.,
var minst með samsæti. Við það tæki-
færi útnefndi foringi Sigurjón Valdi-
marsson til aðstoðar-sveitarforingja.
A. S.
Sunnudaginn þ. 28. nóv. vígði sjera
Þorsteinn Bríem á Akranesi, fána skát-
anna þar, í kirkjunni. Athöfn þessi fór
mjög hátíðlega og vel fram. Á öðrum
stað hjer í blaðinu birtist vígsluræða
sjera Þorsteins. — Um 15 skátar hjeð-
an úr Reykjavík fóru uppeftir þenna
sunnudag. Þakka þeir góðar viðtökur
og biðja Liljuna að skila kæni kveðju.
Útgefendur: Væringjar i Reykjavík. AbyrgðarmaÖur: Ársæll Gunnarsson. Utanáskrift blaðsins
er: P. O Box 834 Reykjavik. Blaðið kemur út einu sinnt í mánuði (þó ekki i júli og ágúst).
Argangurinn kostar 3 krónur. — Prentsmiðjan Acta.