Ljósvakinn - 01.08.1928, Side 9
LJÓSVAKINN
31
Bóka og blaða starfsemi,
í öllum löndum sjá trúboðar vorir, að
aðalmáttarstoð starfsins, og stundum sú
eina leið sem hægt er að ná fólki, er með
bóka og blaða útgáfustarfinu. í fyrra seld-
um við blöð og bækur fyrir hér um bil
18 milj. króna.
Battak: Meðal íbúanna í Baltak (Su-
matra) seldu 19 bóksölumenn á stuttum
tíma 1700 bækur á battisku og 600 á
malayisku.
Japan: Síðastliðið sumar gekk bóksal-
an betur í Japan en nokkru sinni áður.
Prenlsmiðja vor og forlagshús i Shanghai, Kina.
Mexiko: Síðaslliðin fjögur ár höfum víð
unnið 1700 meðlimi til kristinnar trúar,
aðallega fyrir bóksölustarf.
Braziliu: í Suður-Brazilíu unnust 200
meðlimir fyrir bóksölustarfsemi árið sem
leið.
Kína: Af blaði voru Tákn Tímanna, sem
við gefum út í Kina seldum við síðast-
liðið ár 1,220,000 eintök. Og til þess þurft-
um við utn 85 tons af pappír.
Siam: Par létum við prenta 10,000 ein-
tök af blaði sem var ritað gegn notkun
eiturlyfja til nautna. Öll þessi blöð seld-
um við á 10 dögum og fengum pöntun
um 5000 í viðbót.
Fimm námsmenn unnu fyrir öllu er þeir
þurftu á skólanum. Einn bóksalanna fékk
95 pantanir af stórri bók, sem svo átti að
komast inn á hvert fangabókasafn.
Filippseyjarnar: Þar seljum við nú ár-
lega blöð og bækur fyrir 275,000 krónur.
Með aðstoð forslagssjóðs vors höfum við
nú sett á stofn 57 forlagshús víðsvegar um
heiminn. Einn af forstöðumönnum starfs
vors skrifar:
Það er ekki hægt að gera grein fyrir
þeirri hjálp, sem við fáum. Það er dásam-
legt, hvað sameinaðir kraftar geta fram-
kværnt.
N. Z. Town.