Ljósvakinn - 01.08.1928, Síða 24
46
LJÓSVAKINN
náðar sinnar bygt upp sérhverja fallna
mannssál, sem vill gefa sig honum á valdl
Allir spádómar í orði hans gefa tii kynna
um allan heim greinilegar en nokkru sinni
fyr, að Jesús komi brátt. Hvernig cskar
lesarinn að vera staddur á hinum mikla
degi? Á hann að verða byrjun dauðans
eilífu nætur eða upphaf Guðs ævarandi
dags með lífi og dýrð og gleði í riki Jesú
Krists, frelsara vors? M. C. Wilcox.
Hvernig eiga þeir að heyra?
Þeir eru margir, sem lesa þetta haust-
söfnunarblað og gleðjast stórlega yfir því,
að fagnaðarerindið fer sigurför sína út um
ö)l lönd heimsins. En hugsa þeir nokkuð
um kostnaðinn við að halda þessu háleita
verki við? Vér skulum taka að eins eitt
dæmi. Hér er fyrirmyndarheimili. Bæði
hjónin tilheyra söfnuði Sjöundadags Að-
ventista, og hin sex efnilegu börn þeirra
fá skólamentun sína í litla safnaðarskólan-
um sem þau sækja í álta ár. Þaðan fara
börnin hvert á fætur öðru á kristniboðs-
skóla til að ná hærri mentun. Einn af
drengjunum fer að stunda guðfræði, annar
læknisfræði og hinn þriðji verður kennari.
Ein stúlkan verður hjúkrunarkona, önnur
verður biblíustarfskona og hin þriðja barna-
kennari. Svo taka þau burtfararpróf og eru
kölluð til að fara út i heiðin lönd. Sá sem
stundaði guðfræði var kallaður til að fara
sem kristniboði til mannæta á Suðurhafs-
eyjunum, sá sem var læknir fór til Kina
tii að lina þrautir manna í því landi og
sá sem var kennari fór tii Indlands til að
kenna i kristniboðsskóla þar. Stúlkan sem
varð hjúkrunarkona fór til Suður-Ameríku
til að hjúkra hinum vanræktu Indíánum
uppi i Andesfjöllum; biblíustarfskonan fór
til Filippseyjanna og barnakennarinn til
Afriku, til að uppfræða litlu svertingja-
börnin, og nú sitja foreldrarnir einmana
eftir. Þetta er að eins eitt dæmi, en slík
heimili eru nú orðin mörg. Eg skammast
min ekki fyrir að kannast við, að hafa
ekki getað tárabundist þegar eg hef séð
slikar mæður leggja öll börnin sín á altari
kristniboðsins og segja: »Kæri Jesús, hér
er alt sem þú gafst mér. Eg hef uppalið
og mentað þessi börn, til þess að þau
gengu þér á hönd.
Hér eru þau reiðu-
búin til þjónustu í
þinum vingarði. Tak
þú þau að þér og
notaðu þau þar sem
þau geta orðið
heiminum til hinn-
ar mestu bless-
unar«.
Það er slík fórn-
fýsi sem síðastliðið
ár sendi út 184
kristniboða. Það er
þess konar sjálfs-
fórn, sem á fáum
árum hefir reist 97
kristniboðsskóla, 57
prentsmiðjur, til þess
að heiðingjarnir geti
heyrt boðskap Guðs kristinnav trúar hafa
á þeirra eigin tungu- ckki peninga iil að /órna
máli og 43 sjúkra- til Guðs málefnis, þá gefa
hæli og spítala til ^ir at atlllðlim si,nim•
að hjúkra olnboga-
börnum heimsins. Það er fyrir fórnfýsi
kristinna manna, að heiðingjarnir eiga að
heyra fagnaðarerindið og komast að raun
um elsku Guðs.
Ekki eru margir meðal þeirra er lesa
þetta blað, sem hafa þurft að senda syni
sína og dætur út til að starfa hjá mann-
ætum og villimönnum. Guð hefir ekki
heimtað eins mikla fórn af þér, kæri les-
ari; en al þú ekki þá röngu hugmynd í
brjósti þér, að vér hér í heimalöndunum
berum enga ábyrgð á því að úlbreiða
kenningu Krists. Guð heör fengið kristn-
Pegar peir, sem af heið■
inqjunum hafa snúist til