Ljósvakinn - 01.11.1928, Blaðsíða 14
64
LJÓSVAKINN
Indverskt likneski af Buddha.
hugmyndum þeirra sem ekki komist í
framkvæmd fyr eða síðar. En blindur má
maður vera, ef maður heldur að mann-
kynið hafi nokkuð batnað við þelta. í dag
og daglega sýnir mannkynið hinar ljósustu
sannanir um að það geti alls ekki frelsað
sig sjálft. Siðferðishnignun er að finna
hvar sem leitað er og fer vaxandi hröðum
skrefum. Hugmyndir um réttlæti og órétt-
læti eru óðum að ruglast.
Og hvað um framtíðina? Er útlitið
nokkuð betra? Að eins Guðs orð getur
svarað spurningunni. Og svarið er ekki
uppörfandi. Allir ritningarstaðir sem tala
um nútíðina og tíman framundan þangað
til Kristur kemur, bera greinilega vitnis-
burð um hinar vondu tíðir sem vænta má
— svo ástandið mun versna en ekki batna.
Það er ómögulegt að villast á þessu: »En
vita skallu þelta, að á slðustu dögum munu
koma örðugar tíöircc. 2. Tím. 3, 1. Eftir-
farandi vers tala svo um hvernig menn-
irnir munu verða, og við megum gjarnan
gæta að því, að það er hinn svo kallaði
kristni heimur, sem hér er talað um, því
það er talað um að þeir »elski munaðar-
lífið meira en Guð« (það er þvi auðséð að
þeir sem talað er um hafa^ þekkingu á
Guði) og þeir hafa »yfirskin guðhræðsl-
unnar, en afneita krafti hennar«. Og sam-
kvæmt orðum Jesú mun hin sanna trú
næstum verða horfin af jöröunni, þegar
hann kemur aftur. Lúk. 18, 8. Ástandið
á dögum Nóa, þegar »illska mannsins var
mikil á jörðinni«, svo »allar hugrenningar
hjarta mannsins voru ekki annað en illska
alla daga« og »jörðin fyltist glæpaverkum«
(sjá 1. Mós. 6, 5. 11) og einnig ástandið
á dögum Lots, þegar alt siðferði virtist
gersamlega orðið spilt, notar Frelsari vor
til þess að gefa oss hugmynd um ástandið
eins og það verði rétt áður en hann kem-
ur aftur. Lúk. 17, 26—30.
Alt hjal um það að ný ætt »nýtt kyn«
muni hefjast á jörðinni betra en áður hafi
tiðkast, verður því aö álitast sem hug-
myndaflug, sem ekkert hafi við að styðj-
ast, jafnvel þó þær hugmyndir komi frá
fólki, sem langar til að svo verði — og
Sverðdans í Indlandi. Indverskur í-
próltamaðar dansar á beitlum sverðs-
eggjum í nœrveru rikiserfingja
Brelaveldis.