Ljósvakinn - 01.11.1928, Blaðsíða 17

Ljósvakinn - 01.11.1928, Blaðsíða 17
LJÓSVAKINN 67 Þetta ætli að vera nóg. Þetta hlýtur að vera nægilegt til þess að sannfæra hverja sannkristna manneskju, sem ekki er þvi meir búin að rugla saman kenningum ritningarinnar við »austurlenska speki«. »Eg er vegurinn til friðar«. Hvílik ofdirfska af manni að segja slikt, hvort sem það væri Evrópumaður eða Indverji. Það er að eins einn sem í sannleika getur sagt: »Eg er vegurinn« (Jóh. 14, 6.) það er að eins einn sem i sannleika er »vor friður« (Ef. 2, 14. Mik. 5, 4.) nefnilega Jesús Kristur, hinn eini sanni »friðarhöfðingi« (Jes. 9, 6.) hinn sanni mikli heimskennari, sem sagði: »Lærið af mér . . . þá munuð þér finna sálum yðar hvild«. (Matt. 11, 29.) »Mér er gefiö alt vald á himni og jörðu. Farið þvi og gerið allar þjóðir að minum læri- sveinum . . . með því að kenna þeim að halda alt það sem eg hefi boðið yður«. (Matt. 28, 18.—20.) Og aítur: að menn eigi »sjálfir« að geta »frelsað mannkynið«. t*að á að sýna mönn- um að frelsi þeirra, hamingja og frelsun sé í »hugskoti þeirra«. Menn sjálfir eigin frelsarar. Þetta er ekki hinn sanni fagn- aðarboðskapur — svona hljómar hann ekkil Hann vísar hvorki til Krishnamurti né nokkurs annars manns, heldur til Jesú Krists og segir að »það er ekki frelsi i neinum öðrum«; og »það er eigi annað nafn gefið undir himninum, er menn kunni að nefna, sem oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða«. (Posts. 4, 12) »Pú skalt kalla nafn hans Jesú, þvi hann mun frelsa fólk sitt frá syndum þeirra«. (Matt. 1, 21.) Jesús Kristur er hinn eini wmeðalgangari milli Guðs og manna« og »hann gaf sjálfan sig til lausnargjalds fyrir alla«. (1. Tím. 2, 5. 6.) Afvegaleiðandi frá Austurlöndum. Kenningin um Krishnamurti sem heims- kennara er fölsk kenning, sem er í gagn- stöðu við kenningu ritningarinnar, hversu fallega sem hún kann að lita út og hversu æskilegt sem sumum kann að viiðast að hún væri sönn. Og hversu sem þeir eru hrifnir af honum, sem hylla hann »sem hinn nýja heimskennara«, eins og frú Annie Besant komst að orði við blaða- mennina, sem áður hefir verið vikið að. Opinberlega stjórnar Indverjinn J. Krish- namurli félaginu »Stjarnan frá Austria og hefir hann aðalaðseturslað sinn i Ommen i Hollandi, þar sem hann dvelur 3 mán. ársins. Aðra 3 mán. dvelur hann í Adyar í Indlandi, sem er aðalaðsetur guðspek- innar, og 3 mán. dvelur hann í Ojai-daln- um í Kaliforniu, þar sem er i ráði að stofna stóra Dýlendu í því skyni »að skapa miðstöð fyrir nýja menningu«. Xristni Vesturlanda á þannig að fá meira af hin- um »austurlensku spáförum« (sbr. Jes 2, 6.). Þúsundir manna kalla: »Sjáið þarna!« »Sjáið hérl«. Hinn mikli óvinur sálnanna reynir með öllu mögulegu að draga hugi fólks — jafnt þeirra sem einlægir eru og hinna sem óvandaðir eru — frá orði Guðs og hinum sérstaka sannleika, sem gildir fyrir núlifandi kynslóð. Nú dugar ekki að láta sig dreyma um »nýtt mannkyn«, sem sé að fæðast til þess að frelsa þenna heim, eða búa sér til hugmyndir um nýjan »heimskennara« cftir austurlenskum hælti. Heldur þurfa allir að vera einhuga í að undirbúa sig undir endurkoinu Frelsarans, sem kemur til þess að eyðileggja synd og taka þá heim til sfn, sem trúa á hann »og elska opinberun hans«. Það sem heimurinn þarfnast nú er alls ekki heimskennari, sem tali beint í gagn- slöðu við kenningu rilningarinnar, sem er Guðs vilji opinberaður mönnum. Mannkynið befir ekkert gott af því að láta sig leiða af Stjörnunni frá Auslri, sem kemur 2000 árum of seint, heldur þarf hver einstaklingur að láta leiðast af honum, sem er »ljós heims- ins« (Jóh. 8, 12.). Menn þurfa að þekkja wveginn, sannleikann og lífið«. Mannkynið þarf að kynnast Kristi en ekki Krishna- murti. Pýlt úr norska blaðinu „Tidens Tale ‘.

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.