Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Síða 6

Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Síða 6
94 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. I. ARG. í eldhúsinu, fór hún alt í einu að hugsa um, live glaðlega hann hefði sagt »góða nólt!« . . Hún var að hugsa um þetta, meðan hún var að raða ýmsu góðgæti niður í stóra körfu til gjafa. »Má jeg hjálpa yður?« heyrði hún sagt, þegar hún ætlaði að ílytja körfuna. Það var ungi presturinn sem talaði. »Jeg hef annars kveðju til yðar frá barnæskustöðvum yðar«, sagði hann ennfremur. »Til mín?« sagði hún undr- andi. »Já einmitt, gjörið svo vel!« Hann rétti henni innsiglað bréf, hneigði sig lílið eitt og gekk á braut. Elsa horfði undrandi á brjef- ið; ntanáskriftin var gulnuð, en þó læsileg: »Til EIsu, elsku dótt- ur minnar«. Þan nig var skrifað. Hún flýtti sjer upp í herberg- ið sitt og gleymdi öllu öðru. Hún hneig niður á stól. Við að sjá þessa hönd utan á brjefinu, var eins og móða legðist yíir augu hennar, en hún strauk hana fljótt burt; því hún halaði alla viðkvæmni. Síðan braut hún upp brjefið og tók að lesa það. Það var kveðja frá móður henn- ar skrifuð daginn, sem hún lagð- ist og síðan liafði faðir unga prestsins fengið það til geymslu; en hann var þá sóknarpreslur móður hennar. í brjefinu stóðu ástúðlegar á- minningar og kærleiksrík upp- örfun og endaði á þessum orð- um: »Ó, að litla dóttir mín mætti ganga ávalt í ljósi stjörn- unnar á hinum rjetta vegi«. Þegar Elsa liafði lesið þessar fáu línur, sat hún grafkyr. Tár- in komu aptur fram, en nú var þeim ekki meinað það. Nei, þau fjellu eins og þíðandi vor- regn og bræddu hörðu ísskorp- una, sem komin var kring um bjarta hennar. Æ, hún hafði gieymt stjörn- unni; liún hafði gefið beiskju og biturleik rúm í hjarla sínu. En lá ekki líka sökin hjá henni? Hafði hún ekki gleymt guði og hinum rjetta vegi ? — Þetta varð þung sjálfs-rannsókn. Hún reyndi að bera margt í bætifláka fyrir sig, en allt það varð að engu í samvizku hennar í hinu bjarta ljósi, sem brjef móður- innar varpaði yfir breytni henn- ar. Hún vissi ekki, hve lengi hún sat þannig; fyrst þegar kallað var á hana flýtti hún sjer nið- ur. Aldrei fannsthenni liúsmóð- urin hafa litið á hana jafn vin- gjarnlega, og nú lannst henni kærleikshreimur i orðinu: »Gleði- leg jól« en það hafði hún aldr- ei áður fundið. Að eins stutta stund hafði hún verið í burlu, en henni fanst lííið vera orðið breytt á þeirri sLund. Enginn má þó halda, að allt

x

Mánaðarblað K.F.U.M.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.