Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Blaðsíða 11

Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.12.1909, Blaðsíða 11
I. ÁRG. MANAÐARBLAÐ K. F. U. M. 99 Biblían og æskulýðurinn. Einn af beztu framkvæmdar- stjórum K. F. U. M. í Danmörk, Anders Christensen í Randers, hefur nýlega skrifað bók, sem heitir »Ungdom i Bibelen«; það er heil röð af sögum og af mann- lýsingum á þeim æskumönnnm, sem Biblían nefnir. í inngang- inum, sem hefur sömu yfirskrift og þessi grein, stendur eptirfylgj- andi kafli, sem jeg hekl að eigi erindi einnig til vor: »Biblían og œskalýðurinn. Þetta tvennt á vel saman. Og það sem vel á saman má ekki verða aðskilið. Eins og ungur og óreyndur unglingur hefur gott af að sitja við fætur eldra góðvinar og þiggja ráð lians, þannig á það að vera eðlilegt að ungur maður ldusti á hvað Biblían hefur að segja honum. Pví sú bók er gömul og marg- reynd á mörgum öldum. A hjer vel við orðtækið: Reyndan mann er golt að gista. — Biblí- an er það bezla, sem vjer böf- um að bjóða æskumönnum vor- um í hinum kristilegu fjelögum. Hve mikilsvert, þýðingarmikið og fagurl sem vjer að öðru leiti getum boðið þeim, þá bliknar það allt þegar biblian er tekin fram. »Er dagsins gengur drottn- ing fram, þá dofnar stjörnufjöld«. Biblían hejur fundið ceskuna. Af þeirri ástæðu ættu unglingar að kynna sjer Jangtum betur biblíuna, en þeir gjöra. Biblian kann miklu fleiri sögur um æsku- lýðinn en nokkur önnur bók. Á ótal stöðum finnum vjer i henni nefnda æskumenn, sem vert er að kynnast. Stundnm gefur hún oss af þeim langar lýsingar, og stundum erþaðeins og augnabliks myndir, er vjer fáum að sjá. Spyrjum vjer, af hverju það komi, að heilög ritn- ing gefur sig svo mikið að æsk- unni, þá mætti ef til vill svarið vera fólgið í því, að hún tekur ekki aðeins tillit til þess, sem menn eru, heldur einnig til þess, sem menn geia orðið. Með öðr- um orðum: liún kemur auga á fræin og ætlast svo til að þau fái að þroskast. En biblían skilur líka æskuna. Hún getur lýst þrá og eptirvænt- ingum æskunnar, Hilfinningum hennar og baráttu betur en nokkur önnur bók. Og hún sýnir, hvert vopnin eigi að sækja, og hvernig eigi að nota þau í baráttunni miklu; já, meira að segja: Hún sjálf er auðugt vopnabúr. Það er þá áreiðan- legt að biblían þekkir æskuna. En þekkir þá œskan einnig biblíuna sína? Auðvitað væri ekkert eðlilegra. Og stór skömm — svo vjer ekki tölum um tjón- ið — væri það, el' vera skyldi það satt, er sagt hefur verið frá vantrúarhliðinni, að biblían væri

x

Mánaðarblað K.F.U.M.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/494

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.