Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.01.1910, Blaðsíða 11

Mánaðarblað K.F.U.M. - 01.01.1910, Blaðsíða 11
II. ÁRG. MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 11 það gjarna taka en annan ekki. Fjelagið heldur braut sina fram lijá og yfir öllum deilum ílokk- anna, hvort sem mönnum líkar betur eða ver. En hver með- limur gæti sín og hafi guð fyrir augum og fylgi svo því í pólitík- inni, sem honum þykir sannast og í-jettast og góðum borgara samboðið. Fr. Fr. Framhvöt. Kristnir drengir, áfram allir! Aldrei víkja megið þjer, Sálu styrkja söngvar snjallir, Sigur þar til fenginn er. — Guði hjá himnum á Hittumst allir glaðir þá. Hjarta yðar hreint skal vera, Herrann þá þjer munuð sjá! Þeir sem sigra, seinna bera Sigurkranzinn himnum á, Guði hjá himnum á Hátíð skín i sálum þá. Hönd skal ætíð vönd að verki, Vinna það sem nytsamt er; Pálmagrein sem gleði merki Göfgar þann, er sigrar hjer. Guði lijá Iiimnum á Heilast munum glaðir þá. Hver í sinni stjett og stöðu Standi vel, unz endar raun; Hver einn trúr með hjarta glöðu Himsins öðlast náðarlaun. Guði lijá himnum á Heima munum eiga þá. Ræðuþráður, fundinn í skrifuðum blöðum eptir stoínanda K. F. U. M., George Wil- liams, ritaðurmeð hans cigin hendi, liljóðar þanni«: l’igr inun ahlrei iðra þess: Að lifa hreinu lífi. Að beita kröptum þínum til liins ýtrasta. Að lesa með athygli guðs orð. Að vcra góður við fátæka. Að lieyra áður en þú dæmir. Að hugsa áður en þú talar. Að hlýðnast guði. Að halda fast við góð áform. Að liiðja fyrirgeíningar, er þú hefur á röngu aö standa. Að aflcggja slæman vana. Að slíta þig frá fjelögum þínum, er leiða þig afvega. Að halda livíldardaginn heilagan. Að vcrja tíma til biblíulesturs. Að verja tíma til bænar. Að kappkosta að leiða aðra unga mcnn til frelsarans. Að ganga í kirkju á sunnudögum. Að rétta nauðstöddum bróður lijálp- arhönd. Að gefa peninga til guðsríkis, heið- ingjatrúboðs eða K. F. U. M. Að vera kurteis eins og hertogi. Að ætla öðrum liinar beztu hvatir til þess, er þeir gjöra. Að leitast viö að fá unga mcnn til að verða sanna eptirbreytendur Krisls. Fjelagið í öðrum löndum. Itandarfkin í Ameríkn. Taft, forseti Bandaríkjanna, hjelt nýlega vígsluræðuna, er hús K. F. U. M. i Laerosse í Wisconsin var

x

Mánaðarblað K.F.U.M.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/494

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.