Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1926, Side 7

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1926, Side 7
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 5 mikið hrygðarefni, ef hann kæmist að því, að nokkrum væri illa við mig. Hann er svo ástúðlegur sjálfur og anm mjer svo mi'kið! Það er betra fyrir hann, að hann renni eng- an grun í þetta fyr en hann er orðinn miklu eldri, og það er betra fyrir jarlinn. Það væri ekki til annars en að koma kala inn hjá hom um, þótt hann sje ungur“. 'Sedrik vissi því ekki annað en eirihver hul- in ástæða væri til þessa fyrirkomulags, ástæða sem hann væri nú of ungur til að skilja, en yrði útskýrð fyrir honum seinna, þegar hann yrði eldri. Hann furðaði sig á þessu að vísu, en samt var það ekki svo mjög ástæðan til þessa, sem hann kærði sig um. Eptir mörgum sinmum að hafa talað um þetta við mömmu sína og hún hafði huggað hann og dregið upp fyrir honum björtu hlið- ina á þessu máli, fór skuggahliðin að lýsast smám saman, enda þótt hr. Havisham sæi hann stundum sitja hugsandi og horfa alvar- legan í bragði út á sjóinn, og optar en einu sinni heyrði hann, að andvarp steig upp frá brjósti litla vinar síns. „Mjer líkar þetta ekki“, sagði hann einu sinni í samtali við hr. Havisham. „Þjer vit- ið ekki hve mjög mjer leiðist það; en það er líka mörg armæðan í þessum heimi, og maður verður að bera hana. Þetta segir María og jeg hef heyrt hr. Hobbs segja það líka. Og mamma vill að jeg skuli vera glað- ur að eiga heima hjá afa mínum, af því að öll bömin hans eru dáin og það er mjög sorg- legt. Maður kennir í brjósti um mann, sem hefur mist öll bömin sín — og eitt dó svo voveiflega“. öllum, sem kynntust litla lávarðinum, þótti gaman af að heyra hve fullorðinslega hann gat komist að orði; litla bamslega andlitið gat orðið svo alvarlegt. Smámsaman fór hr. ITavisham að finnast samræðan við hann mjög svo skemmtileg. „Svo þú ætiar að láta þjer þykja vænt um jarlinn", sagði hanni einu sinni. „Já“, svaraði lávarðurinn. „Hann er ætt- ingi minn og auðvitað þykir manni vænt um ættingja sína, og þar að auki hefur hann verið mjer mjög góður. Þegar einhver gjör- ir manni svo margt vel til, og vill láta mann hafa allt, sem maður óskar sjer, þá þykir manni auðvitað vænt um hann, þótt hann sje ekki ættingi; hvað þá heldur ef hann er ná- skyldur og gjörir allt þetta, þá þykir manni fjarska vænt um hann‘. „Heldurðu“, sagði hr. Havis-ham, „að jarl- inum muni þykja vænt um þig?“ „Já, það held jeg“, sagði Sedrik; „jeg held það af því að jeg er líka ættingi hans, og jeg er litli drengurinn sonar hans, — og svo, — jeg býst við að honum þyki vænt um mig núna, annars mundi hann ekki vilja láta mig fá allt sem jeg óska mjer, og hefði ekki- sent yður eptir mjer“. „Já“, sagði lögmaðurinn; „svo er það, ein- mi-tt það“. — „Já, einmitt það“, s-agði Sedrik. „Auðvitað þykir mönnum vænt um son-arsyni sína“. — Farþegarnir, sem í fyrstu höfðu verið sjó- veiki-r, voru ekki fyr búnir að ná -sjer svo að þeir gátu verið uppi á þiljum og setið í mak- indastólum á þilfarinu, en þeir höfðu fengið að heyra hina einkennilegu sögu um litla lá- varðinn. Hann virtist hverjum manni vel, og vakti góðfúsa athygli þar sem hann reikaði um á skipinu, stundum einn og stundum með móður sinni eða lögmanninum. Stundm brá hann sjer til hásetannu og spjallaði við þá. Hann vann sjer allstaðar vini. Karlmönnn- um þótti gamam að láta hann ganga með sjer og var þeim skemmtun að heyi'a hin fullorð- inslegu orðatiltæki hans; það var ætíð glatt á hjalla hjá kvenfólkinu, er hann var þar í hóp; þannig vakti hann gleði og dægrastytt- ing, hvar sem hann var. — Meðal hásetanna vann hann sjer beztu vini; heyrði hann hjá þeim margar merkilegar sögur um sjóræn- ingja, sjávarháska og eyðieyjar; ham? frædd- ist hjá þeim um allskonar heiti á seglum og rám. Um tíma kryddaði hann samræður sín- ar með sjómanmamáli, og vakti það opt mikla kæti hjá fai'þegum; það kom svo ski’ingi- lega fram.

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.